Hagnaður alþjóðlega álfyrirtækisins Alcoa jókst um 135% á fyrsta fjórðungi þessa árs, samanborið við fyrsta fjórðung síðasta árs. Hagnaðurinn nam um 355 milljónum bandaríkjadollara á tímabilinu, jafnvirði um 25,7 milljarða íslenskra króna. Afkoman á fyrsta fjórðungi ársins 2004 var 22% betri en á næstliðnum ársfjórðungi.
„Staða okkar á markaði fyrir unnar álvörur styrktist á fyrsta fjórðungi þessa árs, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu,“ segir Alain Belda, forstjóri Alcoa. „Spurn eftir álvörum er meiri nú en þrjú undanfarin ár, sem hefur leitt af sér hækkandi verð. Góða afkomu má þakka því að við höfum bæði lagt áherslu á vöxt og aðhald í rekstri. Við búumst við því að hækkandi álverð muni stuðla að auknum hagnaði á öðrum fjórðungi ársins.“
Alls námu rekstrartekjur Alcoa um 5,7 milljörðum dollara á fyrsta fjórðungi ársins, sem samsvarar um 413 milljörðum íslenskra króna, og er það 11% aukning miðað við sama tímabili í fyrra. Hagnaður af reglulegri starfsemi jókst um 79% milli ára.
Aðgerðir til að lækka rekstrarkostnað skiluðu sér í 27 milljóna dollara sparnaði á fyrsta fjórðungi ársins, sem samsvarar tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna. Skuldir fyrirtækisins hafa minnkað um nálega 1,5 milljarða dollara, jafnvirði um 108 milljarða íslenskra króna, á síðustu 12 mánuðum og er skuldsetningarhlutfall fyrirtækisins nú 34,9%.
Alcoa er fremsti framleiðandi heims á hrááli, unnum álvörum og súráli. Fyrirtækið framleiðir málma sem notað er í margs konar iðnaði, s.s. við smíði samgöngutækja, í umbúðaverksmiðjum og byggingariðnaði. Einnig framleiðir fyrirtækið vínylveggplötur, hluti sem notaðir eru í rafkerfum bifreiða og ýmsan neytendavarning, s.s. Reynolds Wrap® álumbúðapappír, Alcoa® hjól og Baco® álpappír. Hjá fyrirtækinu starfa 127.000 manns í 40 löndum. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsetrinu www.alcoa.com