Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2004-02-23

Verksmiðja Alcoa hlýtur æðstu umhverfisverðlaun Iowa-ríkis - Dregið úr losun mengandi lofttegunda um 94% á tíu árum

Ein af verksmiðjum alþjóðlega álfyrirtækisins Alcoa hlaut nýlega æðstu viðurkenningu sem sem yfirvöld Iowa-ríkis í Bandaríkjunum veita fyrir árangur á sviði umhverfismála.

Alcoa hefur á undanförnum 10 árum varið alls 70 milljónum bandaríkjadollara til að draga úr mengun í tengslum við starfsemi verksmiðjunnar, sem er nærri bænum Davenport við ána Mississippi og framleiðir unnar álvörur af ýmsu tagi.
 
Losun mengandi lofttegunda vegna starfsemi verksmiðjunnar hefur í heild minnkað um 94% á undanförnum áratug og vatnsþörf verksmiðjunnar hefur dregist saman um 97% á sama tímabili. Alcoa hefur í samstarfi við umhverfisstofnun Bandaríkjanna gert viðamikla úttekt á verksmiðjunni í því skyni að greina hugsanleg vandamál og tryggja að framleiðslan uppfylli gildandi reglur og geti mætt kröfum framtíðarinnar.
 
Vegna þessa góða árangurs hefur Alcoa hlotið viðurkenningu fjölmargra bandarískra umhverfisverndarsamtaka. Verksmiðjan í Iowa hefur einnig fengið vottun samkvæmt ISO 14001 gæðastaðli sem staðfestir að umhverfisstefna hennar uppfyllir strangar kröfur og mun tryggja öryggi nærliggjandi byggðarlaga. Aðeins lítill hluti bandarískra fyrirtækja hefur fengið sams konar vottun.
 
Eftirfarandi eru dæmi um þann árangur sem verksmiðja Alcoa í Iowa hefur náð á sviði umhverfismála:
  • Dregið hefur verið úr losun mengandi lofttegunda um 94% á síðustu 10 árum og vatnþörf verksmiðjunnar hefur dregist saman um 97%.
  • Vatn sem notað er við framleiðsluna er að stærstum hluta endurunnið og hefur notkun vatns úr Mississippi ánni minnkað úr um 59 milljónum lítra á mínútu í um 2.600 lítra á mínútu.
  • Meira en 7.000 tré hafa verið gróðursett í nágrenni verksmiðjunnar.
  • Unnið hefur verið með staðbundnum umhverfissamtökum að því að endurheimta votlendi á alls rúmlega 25 hektara svæði við Mississippi ánna.
  • Markvisst hefur verið dregið úr raforkunotkun með því að breyta lýsingu í verksmiðjunni og á skrifstofum.
  • Meira en eitthundrað skip í eigu verksmiðjunnar hafa hætt að nota dísil olíu sem eldsneyti og nota nú umhverfisvænna eldsneyti, sem hefur dregið úr losun mengandi lofttegunda um 30-80%.


Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina