04. janúar 2018
Mat á samfélagsvísum og verklagi Sjálfbærniverkefnis Alcoa og Landsvirkjunar
Í október 2017 voru liðin tíu ár frá því að vöktun Sjálfbærniverkefnis Alcoa og Landsvirkjunar hófst. Í tilefni þess ákváðu eigendur verkefnisins að leita til Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um framkvæmd úttektar á samfélagsvísum og verklagi verkefnisins.
Markmið rannsóknarinnar var: „Að leggja mat á samfélagsvísa í Sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar á Austurlandi“ og „Að greina samfélagsvísana með hliðsjón af félagsvísum sem gefnir eru út af Hagstofu Íslands“. Gagna var aflað með viðtölum, netkönnun og í gegnum hópastarf á ársfundi verkefnisins 2017. Fyrstu niðurstöður voru kynntar á ársfundi verkefnisins, en lokaskýrsla var gefin út í desember 2017.