29. desember 2017

Ingleif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði, hlýtur Ásu Wright verðlaunin

Ingleif Jónsdóttir, prófessor í ónæmisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands og deildarstjóri hjá Íslenskri erfðagreiningu, hlaut í fyrradag heiðurverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright. Verðlaunin eru heiðursskjal og silfurpeningur með lágmynd Ásu og merki Vísindafélags Íslendinga. Auk þess fær verðlaunahafinn þriggja milljón króna peningagjöf frá hollvinum sem eru  fyrirtækin Alcoa Fjarðaál og HB Grandi.

Það var Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sem afhenti Ingileif verðlaunin við hátíðlega athöfn í Þjóðminjasafninu. Verðlaun úr sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright eru veitt íslenskum vísindamanni sem náð hefur framúrskarandi árangri á sínu sérsviði í vísindum eða fræðum og miðlað þekkingu sinni til framfara í íslensku þjóðfélagi.

Verðlaunahafinn í ár, Ingileif Jónsdóttir, hefur stýrt bóluefnarannsóknum við ónæmisfræðideild Landspítala frá árinu 1997 og rannsóknum smit- og bólgusjúkdóma hjá Íslenskri erfðagreiningu frá árinu 2005. Hún starfaði sem dósent við HÍ frá 1996 og varð prófessor við Háskóla Íslands á árinu 2006.

Rannsóknir Ingileifar snúa að grundvallarþáttum í ónæmisvönrum við bólusetningu og að samspili hýsils og sýkils. Hún hefur með rannsóknum sínum sýnt fram á virk áhrif bólusetningar á fjölbreytta sjúkdóma, einkum á þá sem hafa tengsl við bólgumyndandi þætti. Ingileif hefur m.a. sýnt fram á áhrif bólusetningar mæðra á meðgöngu og jákvæð áhrif bólusetningar vegna pnemococca sem valda lungnabólgu og meningococca sem valda heilahimnubólgu.

Rannsóknir Ingileifar hafa leitt til margra mikilvægra niðurstaða sem hafa leitt til heilsufarslegra útbóta en við verðlaunaafhendinguna í dag kom fram að með rannsóknum Ingileifar hafi lífsgæði manna batnað og lífslíkur aukist.

Ingileif hefur m.a. rannsakað öryggi bóluefna, myndun og virkni mótefna og áhrif á bólfestu pneumókokka í nefkoki. Einnig hefur hún rannsakað sýklalyfjanotkun og tíðni eyrnabólgu og ónæmiskerfi nýbura og bólusetningu nýbura gegn pneumókokkasýkingum.

Í rannsóknum sínum hefur Ingileif einnig sýnt fram á að erfðafræðileg áhætta á að fá berkla getur verið aukin hjá þeim sem framleiða ónóg mótefni gegn berklabakteríunni. Hún hefur einnig tekið þátt í að greina tengsl erfðavísa við líkindi þess að fá asthma. Jafnframt hefur hún átt þátt í að finna tengsl milli líkinda á að fá MS sjúkdóminn við ónæmistengd bólgugen en þau geta einnig átt þátt í orsökum offitu.

Ingileif er gríðarlega öflugur vísindamaður og þátttakandi og stjórnandi í rannsóknasamstarfi með vísindafólki frá virtum háskólum og rannsóknastofnum bæði innanlands og utan. Hún hefur ritað ótal greinar í alþjóðleg og virt ritrýnd vísindatímarit auk þess að hafa setið í ritnefndum virtra tímarita á sviði ónæmisfræða. Hún hefur leiðbeint fjölda nema í rannsóknarnámi, í BS-, MS- og doktorsnámi. Ingileif sat í Vísinda- og tækniráði frá árinu 2003 til 2009 og hefur gengt formennsku Vísindasiðanefndar Íslands og Norrænu vísindasiðanefndarinnar auk þess sem hún sat fyrir Íslands hönd í stjórnarnefnd um 4., 5., og 6. rannsóknaráætlun Evrópusambandsins.

Ingileif er fædd þann 27.nóvember 1952 í Reykjavík og er gift Birgi Birni Sigurjónssyni hagfræðingi og eiga þau tvo uppkomna syni. Eftir útskrift frá MR lauk hún BS prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1975. Hún hóf doktorsnám við ónæmisfræðideild St. Mary’s sjúkrahússins í London sama ár og hélt rannsóknum sínum áfram við Wenner Gren stofnun Háskólans í Stokkhólmi fram til ársins 1984. Hún lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Stokkhólmi árið 1991.

 

Asusjodur_2017

Ingileif Jónsdóttir tekur við verðlaununum frá hr. Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands.