Alþýðusamband Íslands:
“"Miðstjórn ASÍ lýsir því stuðningi sínum við áform um byggingu álvers við Reyðarfjörð og virkjunarframkvæmdir á Austurlandi. Miðstjórn ASÍ leggur áherslu á, að þessi framkvæmd er afar mikilvæg fyrir uppbyggingu atvinnu og lífskjara launafólks bæði á Austurlandi og um land allt."
Mr. Vilhjalmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis:
“Uppbygging álvers í Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjun er stórkostlegt framfaramál. Það bætir hag allra landsmanna og Austfirðinga sérstaklega. Miklu máli skiptir fyrir alla landsbyggðina að verkefni af þessum toga geti orðið að veruleika utan höfuðborgarsvæðisins. Aukin alþjóðavæðing verður einn af helstu drifkröftum hagvaxtar á næstu árum. Álverið í Reyðarfirði er mikilvægur hluti af alþjóðavæðingunni og Ísland verður samkeppnishæfara fyrir vikið.”
Af vef Samtaka atvinnulífsins:
“Þessi þróun bendir eindregið til þess að tímasetning upphafs hugsanlegra stóriðjuframkvæmda væri einstaklega heppileg á næsta ári og kæmi til með að valda minni röskun en á tímum meiri spennu í hagkerfinu.”
Tryggvi Harðarsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðar:
“Ég tel að stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi séu mjög mikilvægar fyrir atvinnuástandið og skilyrði fyrir því að hægt sé að búa á svæðinu. Ég hef sjálfur búið í návígi við álver áratugum saman og hef ekki undan neinu að kvarta.
”
Gudmundur Hallvarðsson, þingmaður frá Reykjavík fyrir Sjálfsstæðisflokkinn og formaður samgöngunefndar:
“Allur fréttaflutningur Alcoa af fyrirhuguðum framkvæmdum vegna álvers á Íslandi hefur vakið athygli. Sú ábyrgð og festa sem fyrirtækið sýnir með þessum hætti skapar trausta og góða ímynd. Vegna fyrirhugaðara vegaframkvæmda munu enn aukast möguleikar Íslendinga og erlendra ferðamanna til að njóta fegurðar óbyggða Íslands.
”
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá Vesturlandi:
“Ég fagna því hve mikill áhugi er greinilega á ferðinni hjá ALCOA varðandi byggingu álvers við Reyðarfjörð. Ljóst er að verkefni sem þetta mun skipta efnahagslíf þjóðarinnar miklu máli, en þó skiptir ekki síst miklu fyrir
Austfirðinga að af framkvæmdum verði. Verkefni sem þetta mun hafa mikil og jákvæð áhrif á mannlíf í fjórðungnum almennt og hvetur jafnframt enn frekar til öflugrar uppbyggingar í samgöngukerfi fjórðungsins.
”
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, þingmaður frá Austurlandi:
“Verkefni Alcoa skiptir ekki aðeins Austfirðinga máli, heldur alla Íslendinga. Án verkefnis á borð við þetta stæðum við frammi fyrir efnahagslegri stöðnun.
”
|
 |
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og þingmaður frá Austurlandi:
“Farið verður í framkvæmdir á svæðinu strax í sumar og það sýnir hug manna til verksins. Og áhugi Alcoa á því að vinna hratt fer mjög vel saman við vilja stjórnvalda að gera einmitt slíkt hið sama.”
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar og þingmaður frá Reykjavík sagði í kjölfarið á umræðu um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls kæmi til virkjunar við Kárahnjúka:
“Við [þ.e. Samfylkingin] teljum að auk þess að greiða verulega för manna um þetta svæði, sem er nú meira og minna lokað, verði þetta mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustu.”
Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, borgarfulltrúi og fyrrum menntamálaráðherra:
“[Með framkvæmdunum] verða söguleg þáttaskil í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar. Í fyrsta sinn eru að skapast öruggar forsendur fyrir stórvirkjun og stóriðju utan höfuðborgarsvæðisins.”
Einar M. Sigurðsson, þingmaður frá Austurlandi fyrir Samfylkinguna:
“Þegar búið verður að virkja og reisa álver við Reyðarfjörð þá skapar sú framkvæmd gífurlega möguleika fyrir okkur um allt samfélagið vegna þess að við erum að auka þjóðartekjur okkar, við erum að auka útflutning okkar sem er afar mikilvægt og með því að fá þetta trukk í efnahagslífið munum við auka möguleikana á því að við getum leyst þann mikla vanda sem við er að etja í byggðamálum ... En jafnframt tek ég fram að það að reisa álver við Reyðarfjörð er ekki eingöngu bundið við hagsmuni Austfirðinga. Auðvitað skipta hagsmunir Austfirðinga mjög miklu í því máli. En það eru hagsmunir þjóðarinnar í heild sem þarna er verið að tefla um.”
Smári Geirsson, formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi:
“Menn Alcoa eru sérfræðingar á sviði umhverfismála og starfa einarðlega að öllum þeim þáttum er tengjast félags- og umhverfisþáttum framkvæmdar að þessarri stærðargráðu. Þeir leggja mikið upp úr umhverfismálum og að því að vinna með þeim samfélögum sem eiga í hlut hverju sinni.”
Tryggvi Jónsson, formaður Samtaka verslunar og þjónustu, og forstjóri Baugur Group hf.:
“Erlend fjárfesting af þessari stærðargráðu mun hafa mikil og góð áhrif á íslenskt efnahagslíf. Hagvöxtur mun aukast til lengri tíma séð sem hafa mun jákvæð áhrif á gengi krónunnar. Sérstaklega mun þetta þó hafa jákvæð áhrif á Austurlandi og má búast við auknum uppgangi í öllu atvinnulífi þar, ekki síst í verslun og þjónustu. Þetta eru því mjög þýðingarmikil skref sem verið er að stíga, og ef af framkvæmdum verður, afar góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf.”
|
 |

Kominn með einkanúmerið Alcoa.


Reyðfirðingur velur bílnúmer til heiðurs væntanlegu álveri.
velja
|