 |
 |
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
Mannauðsstefna og vinnuumhverfi
Mannauður og samfélag Stefna Alcoa Fjarðaáls er að fjárfesta til framtíðar í öflugu þekkingarsamfélagi bæði innan og utan fyrirtækisins. Nú þegar hefur fyrirtækið lagt um 140 milljónir króna til uppbyggingar samfélagsins í gegnum samstarfsverkefni við ólíka aðila. Slík fjárfesting skilar sér í verðmætum mannauði sem aftur styrkir samfélagið enn frekar. Starfsmenn eru hvattir til að sinna samfélagsmálum og Fjarðaál greiðir styrki með þeim starfsmönnum sem vinna í þágu góðgerðarsamtaka. Þannig á samfélagið allt að njóta góðs af. Menntun og reynsla Margvísleg og spennandi störf verða í boði hjá Fjarðaáli. Við ætlum að mynda samhentan hóp fólks með fjölbreytta menntun og reynslu. Tæplega 40% starfsmanna verða með háskóla- eða tæknimenntun á meðan önnur störf krefjast ekki neinnar ákveðinnar eða sérstakrar menntunar. Allir starfsmenn munu fá töluverða þjálfun og fræðslu í upphafi og til lengri tíma. Sértæk þekking og hæfni verða því búin til á starfsstaðnum. Sumir starfsmenn fara til þjálfunar erlendis, annað hvort fyrir eigin störf eða til að undirbúa sig undir að þjálfa aðra starfsmenn. Öll störf í fyrirtækinu verða góð störf. Kyn og aldur Starfsmenn Fjarðaáls eiga að endurspegla og efla samfélagið. Æskilegt er að kynjahlutfall verði sem jafnast og öll störf í álverinu henta jafnt konum sem körlum. Jafnframt er stefnt að góðri aldursdreifingu og eðlilegri endurnýjun í fyrirtækinu. Ferli og teymi Í álverinu í Fjarðabyggð verður unnið samkvæmt verkferlum í sjálfstýrðum teymum með víðtæk verksvið. Í teymunum verða leiðtogar sem styðja liðsmenn og sjá til þess að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og hafi það sem þeir þurfa til starfsins. Kjarnateymum verður skipt upp í álframleiðslu, málmvinnslu og framleiðsluþróun. Stoðteymi og þekkingarsetur veita kjarnateymum stuðning. Stöðugt verður leitast við að styrkja teymin og bæta verkferlin. Fjölbreytni og fjölhæfni Öll störf í álverinu eru fjölbreytt og munu allir starfsmenn takast á við ólík viðfangsefni. Þannig munu starfsmenn í kjarnateymum hljóta þjálfun til að vinna flest verk í sínu verkferli og í framhaldi færast milli vinnustöðva reglulega. Á sama hátt munu starfsmenn í kjarnateymum annast daglega framkvæmd ýmissa stoðverka, sem tengd eru t.d. öryggismálum, umhverfismálum, stöðugum úrbótum, ráðningum, þjálfun, áætlanagerð, innkaupum o.s.frv, og fá þá til þess sérstaka þjálfun. Að auki verður árlega boðið upp á nokkur starfsþjálfunartækifæri, þar sem áhugasamir starfsmenn fá þjálfun og reynslu á nýjum starfsvettvangi í 12 mánuði. Slík starfsþjálfun verður til dæmis á sviði öryggis-, umhverfis, mannauðs- og gæðamála. Samstarf og samráð Áhersla verður lögð á að starfsmenn þekki sem best allar hliðar starfseminnar. Teymin munu hafa með sér náið samstarf og samráð um mál sem varða allt fyrirtækið og umhverfi þess. Áhersla verður lögð á upplýsingamiðlun til starfsmanna og þátttöku þeirra í ákvarðanatöku. Hollusta og heilsuvernd Starfsmönnum Alcoa Fjarðaáls á að líða vel í vinnunni. Í álverinu verður heilsusetur með lækni, hjúkrunarfræðingi og öðrum heilbrigðissérfræðingum sem leggja áherslu á forvarnarstarf. Í mötuneyti verður boðið upp á hollt og gott fæði undir leiðsögn næringarráðgjafa. Fjarðarál styður einnig heilsurækt starfsmanna. Jafnvægi vinnu og einkalífs Alcoa Fjarðaál á að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hvað í því felst nákvæmlega verður starfsmanna að ákveða í sameiningu. Hluti af þjónustu við starfsmenn mun einnig standa fjölskyldum þeirra til boða. Vinnutilhögun og vinnutími Störf í áliðnaði eru örugg og vinnutíminn yfirleitt fyrirsjáanlegur. Álið verður að framleiða allan sólarhringinn, allt árið um kring. Í boði verða einnig hlutastörf fyrir framleiðslustarfsfólk sem á erfitt með að vinna á vöktum eða vera í fullu starfi. Kaup og kjör Íslenskur áliðnaður greiðir samkeppnishæf laun, stöðugleiki og starfsöryggi eru mikil og vinnustaðir hafa yfirleitt þótt góðir enda hefur starfsmannavelta í greininni verið lítil. Búseta starfsmanna Allir starfsmenn Alcoa Fjarðaáls munu búa á Austurlandi og greiðir fyrirtækið götu þeirra sem þurfa að flytjast búferlum samkvæmt nánari reglum þar að lútandi. Gert er ráð fyrir að starfsmenn Alcoa Fjarðaáls sjái sjálfum sér og fjölskyldum sínum fyrir íbúðarhúsnæði. Reynt verður að sjá aðfluttum starfsmönnum fyrir tímabundinni húsnæðisaðstöðu í þeim tilfellum þar sem fjölskyldur þeirra ná ekki að flytjast á sama tíma. Starfsmenn eiga við upphaf og lok venjulegs vinnudags og við vaktaskipti kost á endurgjaldslausum ferðum milli álversins og Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Neskaupstaðar, Stöðvarfjarðar og Egilsstaða.
|
 |
|
|
 |