Verkefnin þrjú eru :
Saga og bakgrunnur
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, G. John Pizzey, aðstoðarforstjóri Alcoa Inc. og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu 19. júlí 2002 viljayfirlýsingu um framhald viðræðna um ,,mat og hugsanlega framkvæmd á stóriðjuverkefni sem tekur til byggingar álvers á Austurlandi.” Viljayfirlýsingin var undirrituð við athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynningu um málið og þar var fyrst skilgreining á verkefninu sem yfirlýsingin fjallaði um:
Kárahnjúkavirkjun sem byggð verður á vegum Landsvirkjunar.
Bygging álvers í Reyðarfirði á vegum Alcoa.
Lóð fyrir álver á eignarlandi ríkisins við Reyðarfjörð.
Hafnaraðstaða á Mjóeyri sem Fjarðabyggð leggur til og hafnarsjóður sveitarfélagsins byggir og rekur.
Önnur tengd aðstaða.
(Sjáið alla viljayfirlýsinguna HÉR á vef Landsvirkjunar)
Framkvæmdir
Að loknu víðtæku samráðsferli og lögbundnu mati á umhverfisáhrifum var bygging Fjarðaáls á 322.000 tonna álveri við Reyðarfjörð samþykkt. Fjarðaál er fyrsta álverið sem Alcoa reisir í 20 ár.
Landsvirkjun og Alcoa undirrituðu orkusamning 13. desember 2002. Sjáið fréttatilkynningu um hann hér á síðu Alcoa.
Lögin sem samþykkt voru á Alþingi þann 5. mars 2003 gáfu Alcoa og hlutaðeigandi aðilum heimild til þess að ganga frá samningum vegna verkefnisins. Verkefnið felur einnig í sér að Landsvirkjun reisi 500 MW vatnsaflsvirkjun og að Hafnarsjóður Fjarðabyggðar reisi höfn. Þá yrði einnig ráðist í umfangsmiklar bætur á samgöngumannvirkjum og breytingar á innviðum samfélagsins á Austurlandi.
Um Alcoa og Landsvirkjun
Alcoa er leiðandi afl í heiminum í framleiðslu súráls, hrááls og unnins áls og tekur virkan þátt á öllum sviðum áliðnaðarins. Viðskiptavinir Alcoa starfa m.a. að flugvéla-, bíla-, umbúðaframleiðslu og í byggingariðnaði. Þá má einnig finna viðskiptavini Alcoa innan byggingariðnaðarins. Með fjölbreytileika Alcoa er fyrirtækinu kleift að sameina þekkingu á hönnun, verkfræði og framleiðslu á einum stað og færa viðskiptavinum sínum. Alcoa framleiðir einnig neytendavörur á borð við Reynolds álumbúðir (Reynolds Wrap), Alcoa felgur (Alcoa Wheels) og Baco álpappír (Baco Household Wraps). Þá framleiðir fyrirtækið klæðningar utan á hús, stálsteypumót og rafkerfi í bíla. Starfsmenn Alcoa eru 127.000 og nær starfsemi fyrirtækisins til 38 landa.
Landsvirkjun selur raforku í heildsölu til rafveitna og stóriðjufyrirtækja. Rafmagnssala Landsvirkjunar var alls 7.541,9 GWst árið 2003. Aukningin er 56,3 GWst eða 0,75% miðað við 7.485,6 GWst árið áður. Sala til almenningsveitna hefur aukist um 2,0 % og til stóriðju um 0,2%. Aukning til almenningsveitna er eingöngu á ótryggðu rafmagni en örlítið hefur dregið úr sölu á forgangsrafmagni. Álfyrirtækin hafa einnig verið að auka framleiðni í kerjum með því að nota meira rafmagn. Reiknað er með að framleiðni eigi enn eftir að aukast með meiri rafmagnsnotkun. Alcan á Íslandi er stærsti raforkukaupandi hjá Landsvirkjun síðan kemur Norðurál hf. Af almenningsveitunum eru Rafmagnsveitur ríkisins stærstar en Orkuveita Reykjavíkur kemur næst. Áætlað er að sala Landvirkjunar á almennan markað muni verða sem næst óbreytt næstu árin. Sama á við um sölu til stóriðju þar til kemur fram í apríl árið 2007 en þá er áætlað að hefja sölu á rafmagni til álvers Fjarðaáls. Árið 2008 er fyrsta heila árið þar sem álver Fjarðaáls er í fullri vinnslu. Með tilkomu Fjarðaáls verða 80,9% af raforkusölu Landsvirkjunar til stóriðju miðað við 69,3% árið 2003.
Lokasamningur
Þann 15. mars 2003 voru lokasamningar (lóðarsamningur, orkusamningur og hafnarsamningur) undirritaðir við hátíðlega athöfn á Reyðarfirði:
Lestu meira um verkefnin hér :
Tengdar vefsíður



Kárahnjúkavirkjun
go
Álver Fjarðaáls
go
Fljótsdalslínur (milli virkjunar og álvers)
go