alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Starfsmannamál 
Yfirlit
Mannauðsstefna og vinnuumhverfi
Ráðningar
Kjaramál
Þjálfun og fræðsla
Mannauðsteymi
Kjaramál

Vinnustaðarsamningur
Alcoa Fjarðaál og AFL – Starfsgreinafélag Austurlands, Rafiðnaðarsamband Íslands og Verkalýðsfélag Reyðarfjarðar hafa gert vinnustaðarsamning fyrir starfsmenn í framleiðslu- og viðhaldsstörfum í álverinu á Reyðarfirði. Launakjör ráðast fyrst og fremst af verksviði, ábyrgð, fjölhæfni og þeirri frammistöðu sem næst. Í stað hækkana vegna starfsaldurs er umbunað fyrir aukna verkhæfni, ábyrgð og virka þátttöku í stoðstarfsemi rekstursins ásamt hlutdeild starfsmanns í bættum árangri fyrirtækisins. Smelltu hér til að sjá vinnustaðarsamninginn.
 
Laun framleiðslustarfsmanna
Framleiðslustarfsmenn eru þeir starfsmenn kallaðir sem annast framleiðslu álsins.  Í reynd felast störfin að mestu í að stýra framleiðslutækjum, vinnuvélum og iðnkerfum.  Þegar framleiðslustarfsmaður hefur fengið þjálfun og vottun til að vinna sjálfstætt á tilskildum fjölda starfsstöðva eru viðmiðunarlaun yfir árið í kringum 4.585.000 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu.  Innifalið eru grunnlaun upp á 189.520 kr, um 12,1 klukkustunda yfirvinna á mánuði vegna vaktakerfis og vaktskipta, 37,6% vaktaálag, 19.475 kr. stoðferlaálag, 5% fjölhæfniálag, 15% frammistöðuávinningur, 107.000 kr. orlofsuppbót og 107.000 kr. desemberuppbót.  Meðallaun á mánuði eru þannig um 382.000 kr., þó að raunveruleg mánaðarlaun geti verið lægri eða hærri milli mánaða hverju sinni.
 
Gera má ráð fyrir að það taki framleiðslustarfsmann 18-36 mánuði að fá þá þjálfun og réttindi sem liggja að baki fyrrnefndum launum.  Fram að þeim tíma eru grunnlaun lægri og fjölhæfniálag ekki greitt, sem gerir viðmiðunarlaun yfir árið í kringum 4.100.000 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu.  Meðallaun á mánuði eru þá um 341.000 kr., þó raunveruleg mánaðarlaun geti verið lægri eða hærri milli mánaða hverju sinni.
 
Framleiðslustarfsmaður sem vinnur í fullu starfi en eingöngu í dagvinnu fær lægri laun, eða að frádregnu vaktaálagi og yfirvinnu vegna vaktkerfis.
 
Laun iðnaðarmanna
Viðmiðunarárslaun iðnaðarmanns með sveinspróf og þriggja ára starfsreynslu í faginu, sem vinnur við viðhaldsstörf hjá Alcoa Fjarðaáli og hefur lokið innri vottun, geta orðið  um 5.930.000 kr. fyrir fullt starf í vaktavinnu.  Innifalið eru grunnlaun upp á 251.144 kr., um 12,1 klukkustunda yfirvinna á mánuði vegna vaktakerfis og vaktaskipta, 37,6% vaktaálag, 19.475 kr. stoðferlaálag, 5% fjölhæfniálag, 15% frammistöðuávinningur, 107.000 kr. orlofsuppbót og 107.000 kr. desemberuppbót. Meðallaun á mánuði eru þannig rúmar 494.000 kr., þó að raunveruleg mánaðarlaun geti verið lægri eða hærri milli mánaða hverju sinni.
 
Ef innri vottun er ekki lokið á iðnaðarmaður ekki rétt á 5% fjölhæfniálagi.
 
Iðnaðarmaður með minna en þriggja ára starfsreynslu í faginu, sem vinnur við viðhaldsstörf hjá Alcoa Fjarðaáli, er til viðmiðunar með um 5.060.000 kr. í árslaun, eða meðallaun á mánuði upp á tæpar 422.000 kr, þó raunveruleg mánaðarlaun geti verið lægri eða hærri milli mánaða hverju sinni.
 
Iðnaðarmaður í fullu starfi en eingöngu í dagvinnu fær lægri laun, eða að frádregnu vaktaálagi og yfirvinnu vegna vaktkerfis.
 
Yfirvinna og vaktir
Hluti starfsmanna Fjarðaáls vinnur á vöktum eða mikill meirihluti framleiðslustarfsmanna og um þriðjungur iðnaðarmanna.
Full vaktavinna er 36 virkar vinnustundir á viku að meðaltali. Gert er ráð fyrir 12,1 klst. yfirvinnu á mánuði vegna vaktakerfis og vaktaskipta. Sem viðmið er notað 37,6% vaktaálag að meðaltali.
 
Stoðferlaálag
Allir starfsmenn sem samningurinn nær til fá sama stoðferlaálag eða 19.475 kr. á mánuði miðað við fullt starf. Tilgangur stoðferlaálags er að umbuna starfsmönnum fyrir þátttöku í ýmsum verkefnum sem styðja kjarnastarfsemina.

Stoðferlavinna tryggir skilning starfsmanna á öllum þáttum starfseminnar, eykur fjölbreytni í starfi, stuðlar að þroska starfsmanna og veitir þeim hlutdeild í verkum sem styrkja hlutverk þeirra í hinni eiginlegu álvinnslu.

Stoðferlavinna getur meðal annars tengst stöðugum endurbótum, vinnuvernd, umhverfi, þjálfun, áætlanagerð, innkaupum, móttöku gesta eða samþættingu vinnu og heimilislífs. Slík verkefni koma til viðbótar daglegum störfum en vinnast innan reglulegs vinnutíma.
Fjölhæfniálag

Alcoa Fjarðaál leggur áherslu á að starfsfólk viðhaldi og bæti stöðugt hæfni sína og þekkingu og jafnframt að störf séu fjölbreytt og fólk sinni jöfnum höndum hinum ýmsu verkum sem tilheyra því framleiðsluferli sem það starfar innan. Þess vegna er greitt fjölhæfniálag sem er 5% af mánaðarlaunum, vaktaálagi og unninni yfirvinnu starfsmanns.

Framleiðslustarfsmaður fær fjölhæfniálag þegar hann hefur hlotið vottun á tilteknum  fjölda vinnustöðva og er miðað við að þeirri vottun ljúki á 18-36 mánuðum. Til að fá fjölhæfniálag þarf iðnaðarmaður að standast stöðumat sem metur hæfni hans miðað við þarfir fyrirtækisins.
 
Frammistöðuávinningur
Tilgangur frammistöðuávinnings er að deila hagnaði og ávinningi og tryggja að liðsheildin vinni saman að því að ná stöðugt betri árangri. Frammistöðuávinningurinn á að stuðla að teymisvinnu og virkri þátttöku starfsmanna í ólíkum þáttum starfseminnar, hann á að vera sanngjarn og starfsfólki skiljanlegt hvernig það getur haft áhrif á þann árangur sem næst. Frammistöðuávinningur verður tengdur árangri á sviðum framleiðslu, öryggis, umhverfis, þjónustu og gæðum, sem og vinnusiðferði, vinnulagi, vinnuhegðun og fleiri þáttum eftir áherslum í þróun starfseminnar hverju sinni. Frammistöðuávinningur er 0 - 30% af mánaðarlaunum, vaktaálagi og unninni yfirvinnu, með 15% sem viðmið fyrir eðlilega frammistöðu. 
 
Ferðir, fæði og líkamsrækt
Starfsmenn eiga við upphaf og lok venjulegs vinnudags og við vaktaskipti kost á endurgjaldslausum ferðum milli álversins og Reyðarfjarðar, Eskifjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Neskaupstaðar, Stöðvarfjarðar og Egilsstaða. Starfsmenn fá eina máltíð daglega. Alcoa Fjarðaál styður hvern starfsmann árlega með 12.000 kr. til að stunda líkamsrækt.
 
Starfsfólk utan vinnustaðasamnings
Annað starfsfólk fyrirtækisins en það sem er í framleiðslustörfum eða iðnaðarstörfum í viðhaldi, stendur utan vinnustaðasamningsins.  Þetta starfsfólk fær markaðslaun hverju sinni í samræmi við skilgreint launakerfi.  Miðast markaðslaunin við níu valin fyrirtæki á landsvísu. Að auki nýtur starfsfólk utan vinnustaðasamningsins ýmissa kjara sem koma fram í samningnum.
 
Vinnustaðarsamninginn er hægt að nálgast hér.

  Vinnustaðasamningur [93 KB]

Til þess að skoða skjöl í PDF-formi þarf Adobe Acrobat Reader, sem er hægt að sækja endurgjaldslaust á síðu Adobe.



Vinnustaðasamningur


Alcoa Fjarðaál sf.,  Afl - Starfsgreinafélag Austurlands, Rafiðnaðarsamband Íslands og Verkalýðsfélag Reyðarfjarðar skrifuðu í maí 2006 undir vinnustaðarsamning sín á milli. Samningurinn gildir til 30. nóvember 2010. Hægt er að skoða samninginn hér og prenta út ef vill.
skoða samning (PDF)

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina