 |
 |
 |
 |
 |
 |
Vöru- og þjónustuþættir
Alcoa Fjarðaál hyggst bjóða völdum birgjum og þjónustuaðilum að taka þátt í lokuðum útboðum. Sú þjónusta sem Alcoa Fjarðaál áformar að bjóða út er mjög fjölbreytt og spannar allt frá hafnarstarfsemi og birgðahaldi yfir í verkfræði- og tölvuþjónustu – og allt þar á milli. Enn er óljóst hvaða vöruflokkar verða boðnir út en útbúinn hefur verið listi yfir þá þjónustuþætti sem álverið mun hugsanlega sækjast eftir (sjá þó fyrirvara neðst á þessari síðu). Vinsamlegast athugið að Alcoa Fjarðaál gerir ríkar kröfur til þeirra þjónustuaðila sem fyrirtækið semur við. Fyrirtæki sem vilja bjóða í verkefni á vegum Alcoa Fjarðaáls þurfa m.a. að sýna fram á að þau axli ábyrgð í vinnuöryggis- og umhverfismálum, hafi mótað sér og framfylgi öflugri gæðastefnu, og geti veitt þjónustuna þegar og þar sem þörf er á. Þeir aðilar sem hafa áhuga á að bjóða Alcoa Fjarðaáli þjónustu sína í framtíðinni eru eindregið hvattir til að skrá sig sem fyrst á lista hjá okkur. Hér fyrir neðan eru taldir upp þeir þjónustuflokkar sem áætlað er að bjóða út (eða hafa verið boðnir út). Vinsamlegast takið eftir númerum þjónustuflokkannna sem nauðsynlegt getur verið að hafa við hendina við skráningu fyrirtækis. Nánari skilgreiningu á flestum þjónustuþáttum er að finna á sérstöku skjali (í PDF-formi). Umhverfismál (áætlaður útboðstími) 101 - Kerbrot (eftir gangsetningu) 102 - Þrif á iðnaðarsvæðum (fyrir árslok 2006) 103 - Kælimiðlar og smurefni (mitt ár 2006) 104 – Umhverfisvöktun (búið að semja) 105 - Úrvinnsla álgjalls Í ársbyrjun 2007 106 - Meðhöndlun sorps Sumar 2006 107 - Meðhöndlun raflausnarefnis Árslok 2006. 108 – Vatnsveita og hreinsun útboðstími óákveðinn Almenn þjónusta innan og utan húss (áætlaður útboðstími) 201 - Snjómokstur (sumar 2006) 204 - Pípulagnir og gaskerfi (vor 2006) 203 - Garðyrkjuþjónusta (ársbyrjun 2007) 204 – Fóðrun/Múrverk (sumar 2006) 205 – Flutningur og hafnarstarfsemi (í athugun) 206 – Inn- og útflutningur (í athugun) Almenn þjónusta tengd starfsmannahaldi (áætlaður útboðstími) 220 - Þvottur og viðhald klæðnaðar (vor 2006) 221 - Mötuneyti (samn. frág. vor 2006) 222 – Vinnuvernd (samn. frág. sumar/haust 2006) 223 - Heilbrigðisþjónusta (samn. frág. sumar/haust 2006) 224 - Launabókhald (samn. frág. vor 2006) 225 – Ráðningarþjónusta (verið er að ganga frá samningi) 226 - Starfsþjálfun (tímasetningar mismunandi) 227 - Sérhæfð þjálfun (samn. haust/vetur 2006) 228 – Starfsmannaflutningar (samn. frág. sumar/haust 2006) Almenn þjónusta tengd rekstri (áætlaður útboðstími) 230 - Öryggisgæsla (sumarið 2006) 231 - Endurskoðun (samningur þegar frágenginn 232 - Almannatengsl (samningur þegar frágenginn) 233 - Auglýsingastofa (verið að ganga frá samningi 234 – Lögfræðiþjónusta (samningur þegar frágenginn) 235 - Tölvuþjónusta (samn. frág. sumar/haust 2006) 236 - Fjölbreytt verkfræðiþjónusta (tímasetningar mismunandi) Viðhaldsþjónusta (áætlaður útboðstími) 301 - Rafeindatækni og samskiptakerfi (haust/vetur 2006) 302 - Rafmagn - háspenna (sumar 2006) 303 - Loftveita (árslok 2006) 304 - Vélar og kerfi - steypuskáli (vor 2007) 305 - Almenn kerfi (árslok 2006) 306 – Vélaviðgerðir (árslok 2006) 307 – Málmsmíðar (tímarammi mismunandi) 308 - Vélar og kerfi – skautsmiðja (breytilegur tímarammi) 309 - Þjónustukranar (ársbyrjun 2006) 310 – Farartæki til álframleiðslu (fyrir árslok 2006) 311 - Viðhald bygginga (tímarammi mismunandi eftir byggingum) Fyrirvari
Áform um útboð á þjónustu miðast við núgildandi áætlanir fyrirtækisins sem geta tekið breytingum. Alcoa Fjarðaál áskilur sér rétt til að falla frá áformum um útboð á þjónustu, breyta skilgreiningu verkefna, innkaupaaðferðum, viðmiðum við val tilboða og tímasetningum.
Listi yfir þjónustuþætti
[591 KB]
Til þess að skoða skjöl í PDF-formi þarf Adobe Acrobat Reader, sem er hægt að sækja endurgjaldslaust á síðu Adobe.
|
 |
|
 |
|
 |