Alcoa á Íslandi
Sjálfbærniverkefni Alcoa og LV 
Yfirlit
Samráðshópurinn
Verkefnin þrjú
Fréttasíðan
Júnífundur
Ágústfundur
Októberfundur
Íslenskir Tenglar


Velkomin á síðu samstarfsverkefnis Alcoa og Landsvirkjunar um sjálfbæra þróun

Tilgangur þessarar síðu er að kynna samstarf Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar um sjálfbæra þróun sem felst í því að mæla áhrif stórframkvæmdanna á Austurlandi, KárahnjúkavirkjunarFljótsdalslína 3 og 4 og álvers Fjarðaáls  - á efnahagslíf, umhverfi og samfélag.

Myndaður var samráðshópur sem vann í náinni samvinnu við fyrirtækin að því að þróa vísa sem notaðir verða til að fylgjast með áhrifum verkefnanna þriggja. Formlegu starfi samráðshópsins lauk í janúar 2005 og í apríl sama ár kom út Áfangaskýrsla - Vísar og grunnástand.

Í framhaldi af starfi samráðshópsins hafa Landsvirkjun og Alcoa gert framkvæmdaráætlun fyrir mælingarnar (áfangi 3) og eru nú um það bil að hefja mælingarnar sjálfar (áfangi 4). Upplýsingar um þær verða birtar jafnóðum og þær berast en hægt er að nálgast fyrstu tvær skýrslurnar í dálkinum hægra megin á þessari síðu.
 




Áfangaskýrsla - Framkvæmdaáætlun


Í febrúar 2006 kom út skýrsla vegna þriðja áfanga sjálfbærniverkefnisins en það er framkvæmdaáætlun. Skýrsluna má nálgast hér í PDF-skjali.
skoða skýrslu í PDF-formi




Áfangaskýrsla I/II


Formlegu starfi samráðshóps Alcoa og Landsvirkjunar lauk í janúar 2005 og í apríl sama ár kom út Áfangaskýrsla I/II - Vísar og grunnástand. Skýrsluna er hægt að skoða á PDF-skjali og prenta út ef vill.
skoða skýrslu í PDF-formi

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina