alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Starfsmannamál 
Yfirlit
Mannauðsstefna og vinnuumhverfi
Ráðningar
Kjaramál
Þjálfun og fræðsla
Mannauðsteymi
Viðurkenning Jafnréttisráðs 2008

Þann 24. október 2008 afhenti Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra Alcoa Fjarðaáls, viðurkenningu Jafnréttisráðs 2008 en hana hlýtur fyrirtækið m.a. fyrir góðan árangur í því að vinna gegn kynbundnu starfsvali og kynjaskiptingu vinnumarkaðar.
 
Fréttatilkynning Jafnréttisráðs:
 
Stefna Alcoa Fjarðaáls um að ráða að jöfnu konur og karla til starfa í fyrirtækinu hefur verið áberandi frá upphafi starfsemi þess. Þeirri stefnu var framfylgt með markvissum atvinnuauglýsingum og kynningarfundum sem konum var boðið sérstaklega til, en þeir voru haldnir í öllum byggðakjörnum á Austurlandi, auk þess sem almennir íbúafundir voru haldnir til að kynna ráðningarstefnu fyrirtækisins.
 
Árangur þessarar stefnu er að 28% allra starfsmanna Alcoa Fjarðaáls eru konur, 34% í framleiðslustörfum og 27% í framkvæmdastjórn. Þetta er besti árangur sem náðst hefur innan Alcoa samsteypunnar og líkur til að um heimsmet í áliðnaðinum sé að ræða.

Alcoa Fjarðaál vinnur eftir nýrri jafnréttisáætlun sem tekur mið af nýsamþykktum jafnréttislögum nr. 10/2008. Með henni fylgir metnaðarfull framkvæmdaáætlun sem leggur áherslu á áframhaldandi jöfnun kynjahlutfalls starfsmanna á öllum sviðum, áætlun um að tryggja launajafnrétti og samræmingu atvinnu- og fjölskyldulífs.

Athygli vekja áætlanir um að hvetja og styrkja konur til iðnmenntunar og áhersla á að bæði kynin noti rétt sinn til fæðingarorlofs og veikindadaga barna. Þá tekur Alcoa Fjarðaál árlega þátt í launakönnun Intellecta, sem nær til þeirra starfsmanna sem semja sjálfir um laun sín og hafa konur verið hækkaðar í launum í kjölfar þessara kannana.

Jafnréttisráð telur árangur Alcoa Fjarðaáls í því að vinna gegn kynbundnu starfsvali og kynjaskiptingu vinnumarkaðar til fyrirmyndar, en alkunna er að á Íslandi hefur reynst erfitt að brjóta upp hefðbundið náms- og starfsval kynjanna. Kynskipting vinnumarkaðar á þátt í að viðhalda kynbundnum launamun og því hafa aðgerðir sem eru til þess fallnar að draga úr henni jákvæð áhrif á launamun kynja. Þessi árangur Alcoa Fjarðaáls er ekki síst mikilvægur í ljósi þess að kannanir benda til að launamunur kynja sé meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.
 
Jafnréttisráð hefur veitt viðurkenningar árlega frá árinu 1992. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða. Aðeins einu sinni áður hefur viðurkenningin fallið í skaut aðila á landsbyggðinni, en fyrstu viðurkenningu ráðsins hlaut Akureyrarbær.
 
Viðurkenningargripur ársins 2008 er postulínsstytta eftir Guðrúnu Indriðadóttur myndlistarmann sem ber heitið Snúum bökum saman.


  Jafnréttisstefna Alcoa Fjarðaáls [27 KB]

Til þess að skoða skjöl í PDF-formi þarf Adobe Acrobat Reader, sem er hægt að sækja endurgjaldslaust á síðu Adobe.



Jafnréttisstefna Alcoa Fjarðaáls


Skýr stefna fyrirtækisins í jafnréttismálum, ásamt aðgerðaáætlun, vakti athygli Jafnréttisráðs. Þú getur nálgast stefnuna hér í PDF-formi (9 bls.)
smelltu hér til að skoða (pdf, 27 kb)

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina