Í samræmi við þá stefnu Alcoa að hlúa að náttúruvernd og umhverfismálum mun Alcoa Fjarðaál taka virkan þátt í verkefnum sem beinast að þessum efnum á Austurlandi eftir að álverið er tekið til starfa 2007. Sérstaklega mun fyrirtækið beita sér fyrir verkefnum í samfélaginu næst álverinu í Reyðarfirði en mun þó styðja með ýmsum hætti átök til náttúruverndar eftir því sem við á.
Þangað til rekstur hefst mun Alcoa Fjarðaál þó leitast eftir samvinnu við félagasamtök og stofnanir sem vinna að umhverfismálum. Þegar eru nokkur verkefni komin af stað sem fyrirtækið hefur skuldbundið sig til að styðja: Alþjóðlegt skógræktarátak sem Alcoa nefnir „Tíu milljón tré“, skógrækt á svæði starfsmannabúða Bechtel/HRV, fyrirhugaður Vatnajökulsþjóðgarður, loftslagsverkefni Landverndar og samstarf við Landsvirkjun um verkefni er varðar sjálfbæra þróun.
Tíu milljón tré“
Alcoa fór af stað með skógræktarátakið „Tíu milljón tré“ í júní árið 2003, á Degi jarðarinnar. Þetta er alþjóðlegt átak sem allir starfsmenn Alcoa munu taka þátt í. Hinn íslenski hluti átaksins hófst formlega í júní 2003 þegar grunnskólabörn og fleiri íbúar í Fjarðabyggð gróðursettu fyrstu trén af mörgum sem Alcoa hyggst gróðursetja í Fjarðabyggð.
Skógrækt við starfsmannaþorp Bechtel og HRV (FTV)
Þegar ákveðinn var staður fyrir starfsmannabúðir verktakanna sem byggja álverið, Bechtel og HRV kom í ljós að þar höfðu verið gróðursett tré af hálfu Skógræktarfélags Reyðarfjarðar. Þá voru trén grafin upp og þeim fundinn góður geymslustaður en það verkefni tók skógræktarfélagið að sér. Eftir að byggingu álversins verður lokið árið 2007 munu starfsmannabúðirnar teknar niður. Alcoa Fjarðaál hefur skuldbundið sig til að skila svæðinu ræktuðu í samvinnu við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar og Sólskóga.
Vatnajökulsþjóðgarður
Frá því að Alcoa ákvað að byggja álver á Íslandi hefur fyrirtækið sýnt áhuga á því að taka þátt í uppbyggingu á þjóðgarði norðan Vatnajökuls. Stjórnvöld skipuðu á sínum tíma sérstaka nefnd til að kanna hvernig best verði staðið að verndun þessa svæðis og hefur nefndin þegar skilað tillögum sínum.
Í dag er hugmyndin um þjóðgarð norðan Vatnajökuls að verða að veruleika, þar sem ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum þann 25. janúar 2005, að tillögu umhverfisráðherra, að unnið verði að undirbúningi að því að fella landssvæði norðan Vatnajökuls inn í framtíðar Vatnajökulsþjóðgarð í samráði við heimamenn og aðra hagsmunaaðila. Alcoa Fjarðaál fylgist grannt með framgangi þess máls.
Loftlagsverkefni Landverndar
Alcoa er einn af stuðningsaðilum svokallaðs loftslagsverkefnis Landverndar en um það segir á síðu samtakanna: „Loftslagsbreytingar af mannavöldum eru eitt mest aðkallandi viðfangsefni mannkyns. Landvernd er með umfangsmikið verkefni sem er ætlað að vera einskonar hugmyndasmiðja fyrir hvernig hægt sé að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) á Íslandi.” Sumarið 2004 unnu fjórir námsmenn að ýmsum rannsóknum á sviði samgangna, fiskveiða og landgræðslu og skógræktar í þeim tilgangi að greina möguleika til aðgerða. Niðurstöður þessara vinnu voru kynntar á málþingi 8. október 2004. Skýrslur um þessar rannsóknir liggja fyrir á vef Landverndar en nú er verið að undirbúa vinnu við síðasta áfanga í verkefninu.
Sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar
Árið 2004 hófst samstarfsverkefni Alcoa og Landsvirkjunar um sjálfbæra þróun vegna framkvæmda fyrirtækjanna á Austurlandi. Nánari upplýsingar um þetta verkefni er að finna á síðu samstarfshóps um sjálfbæra þróun.