Alcoa á Íslandi
Innkaupaaðferðir 
Rafrænt uppboð
Rafræn innkaup
Lokað útboð
Innkaupaaðferðir: Yfirlit

Alcoa Fjarðaál notar í meginatriðum sömu innkaupaaðferðir og önnur fyrirtæki Alcoa-samstæðunnar um víða veröld.
 
Haldin er skrá yfir alla viðurkennda bjóðendur (sjá kröfur til bjóðenda) og upplýsingum miðlað til þeirra um væntanleg kaup á vöru eða þjónustu. Þannig á sér alltaf stað forval áður en verkefni eru boðin út og áskilur fyrirtækið sér rétt til að velja fyrirtæki sem það býður til þátttöku.
 
Í öllum tilfellum koma einungis þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenningu hjá Alcoa Fjarðaáli sem mögulegir birgjar til greina til þess að bjóða í verkefnin. Því er nauðsynlegt fyrir bjóðendur vöru og þjónustu að skrá fyrirtækið tímanlega.
 
Innkaupum á vöru og þjónustu er hagað samkvæmt þremur mismunandi innkaupaaðferðum:
 
  1. Rafrænu uppboði
  2. Rafrænum innkaupum
  3. Lokuðu útboði
 
Vinsamlegast notið valstikuna hér til hliðar til þess að skoða nánari lýsingu á þessum þremur aðferðum.
 
Fyrirvarar
Áform um útboð á þjónustu miðast við núgildandi áætlanir fyrirtækisins sem geta tekið breytingum. Alcoa Fjarðaál áskilur sér rétt til að falla frá áformum um útboð á þjónustu, breyta skilgreiningu verkefna, innkaupaaðferðum, viðmiðum við val tilboða og tímasetningum.
 

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina