 |
 |
 |
 |
 |
 |
Yfirlit: Viðskiptatækifæri
Á þessum síðum má finna yfirlit um það fjölbreytta vöruúrval sem Alcoa framleiðir um allan heim en einnig upplýsingar fyrir fyrirtæki sem hafa áhuga á því að bjóða Alcoa Fjarðaáli vöru eða þjónustu. Sú þjónusta sem Alcoa Fjarðaál áformar að bjóða út er mjög fjölbreytt og spannar allt frá hafnarstarfsemi og birgðahaldi yfir í verkfræði- og tölvuþjónustu – og allt þar á milli. Alcoa Fjarðaál gerir ríkar kröfur til þeirra þjónustuaðila sem fyrirtækið semur við. Fyrirtæki sem vilja bjóða í verkefni á vegum Alcoa Fjarðaáls þurfa m.a. að sýna fram á að þau axli ábyrgð í vinnuöryggis- og umhverfismálum, hafi mótað sér og framfylgi öflugri gæðastefnu, og geti veitt þjónustuna þegar og þar sem þörf er á. Við mat á tilboðum er þannig ekki eingöngu horft á verð heldur einnig á fjölmörg önnur atriði. Í sumum tilvikum munu bjóðendur sem hafa starfsemi á svæðinu njóta ákveðins forgangs, sérstaklega þegar afhendingar- eða viðbragðstími skiptir máli. Rétt er þó að taka fram að Alcoa Fjarðaál áskilur sér fullan rétt til að velja bjóðendur í hverju tilviki fyrir sig út frá þeim viðmiðum sem fyrirtækið ákveður hverju sinni. Stefnt er að því að fyrstu þjónustuútboðin á vegum Alcoa Fjarðaáls fari fram fyrir lok þessa árs en flest þeirra munu þó fara fram árið 2006. Í mörgum tilvikum mun þjónustan verða veitt þegar eða eftir að álverið tekur til starfa árið 2007, en hins vegar verða verkefnin boðin út svo fljótt sem unnt er, til að gefa fyrirtækjum möguleika á að undirbúa sig. Við hvetjum þá sem áhuga hafa á að bjóða vörur eða þjónustu að skrá sig sem fyrst. Í stuttu máli:
• Þjónustuútboð fela í sér yfir 50 aðgreind viðskiptatækifæri fyrir iðn- og þjónustufyrirtæki.
• Alcoa Fjarðaál mun einbeita sér að kjarnastarfseminni – álframleiðslu – en láta öðrum fyrirtækjum eftir það sem þau kunna betur.
• Allir bjóðendur verða að uppfylla ákveðnar kröfur sem eru þær sömu og fyrirtæki Alcoa-samstæðunnar gera hvar sem er í heiminum (m.a. vinnuöryggis- og umhverfismál).
• Áhersla lögð á að semja við fyrirtæki sem hafa starfsemi á Austurlandi, svo fremi þau uppfylli allar kröfur og séu samkeppnishæf að öðru leyti.
• Fyrstu útboð fyrir lok 2005 en mestur hluti 2006. Stór hluti útboðanna er nú þegar lokið.
• Mismunandi útboðsaðferðir en ávallt forval.
• Alcoa Fjarðaál áskilur sér rétt til að velja bjóðendur út frá þeim viðmiðum sem fyrirtækið ákveður.
Fyrirvarar Áform um útboð á þjónustu miðast við núgildandi áætlanir fyrirtækisins sem geta tekið breytingum. Alcoa Fjarðaál áskilur sér rétt til að falla frá áformum um útboð á þjónustu, breyta skilgreiningu verkefna, innkaupaaðferðum, viðmiðum við val tilboða og tímasetningum.
|
 |
|
 |
|
 |