alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Stefna varðandi innkaup 
Stefna Alcoa Fjarðaáls um útboð á þjónustu

Hlutverk væntanlegs álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði er að framleiða ál á sem hagkvæmastan, öruggastan og umhverfisvænastan hátt.
 
Stefna fyrirtækisins er að einbeita sér að þessari kjarnastarfsemi og láta öðrum eftir ýmsa stoðþjónustu sem tengist rekstrinum. Þannig hyggst fyrirtækið nýta þá þekkingu, reynslu og verkkunnáttu sem önnur fyrirtæki búa yfir, jafnt á svæðinu sem á landinu öllu.
 
Þessari stefnu Alcoa Fjarðaáls er jafnframt ætlað að stuðla  að frekari uppbyggingu fyrirtækja á Austurlandi, svo og vexti og viðgangi svæðisins í heild, og skapa um leið jákvæða samkeppni um vinnuafl á svæðinu.
 
Alcoa Fjarðaál leggur áherslu á að eiga viðskipti við þjónustuaðila sem hafa aðsetur á svæðinu í grennd við álverið, svo fremi sem þeir uppfylla þær kröfur sem gerðar eru vegna verks og teljast samkeppnishæfir.
 
Í sumum tilvikum verður gerð krafa um að þjónustuaðili sé með starfsstöð nálægt álverinu, þegar það þykir nauðsynlegt til að tryggja gæði, öryggi og stuttan afhendingar- eða viðbragðstíma. Í þeim tilvikum þar sem staðsetning skiptir ekki máli, munu þeir bjóðendur njóta forgangs sem sýna fram á að þeir búi til ný störf á svæðinu eða kaupi aðföng þar, svo framarlega sem þeir uppfylli aðrar kröfur sem gerðar eru til verksins hverju sinni og séu samkeppnishæfir.
 
 

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina