alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Norður Ísland 
Mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík

Álver, jarðhitavirkjanir og háspennulínur - Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum -  Tillaga að matsáætlun
 
Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.

Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 eru framkvæmdirnar háðar sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum, í samræmi við 2. mgr. 5. greinar í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.  Matið nær til fjögurra ofangreindra framkvæmda.

Tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna fjögurra var skilað inn til Skipulagsstofnunar 23. september samhliða nýjum tillögum að matsáætlunum fyrir Þeistareykjavirkjun og Kröfluvirkjun II. Skipulagsstofnun hefur þegar fallist á matsáætlun Landsnets fyrir háspennulínur að Bakka og matsáætlun Alcoa fyrir álver á Bakka.

Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 í Reykjavík.  

Hægt er að nálgast  tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat hér til hliðar. 

Einnig eru tenglar inn á heimasíður viðkomandi fyrirtækja þar sem nálgast má matsáætlanir fyrir framkvæmdirnar fjórar.    
 
Þeistareykjavirkjun 
Kröfluvirkjun II

Háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík
 

Mat á umhverfisáhrifum - Matsáætlun
 
Í nóvember 2008 kynntu Alcoa og HRV tillögu að matsáætlun vegna álvers á Bakka við Húsavík með framleiðslugetu allt að 346.000 tonn á ári.  Álver Alcoa fellur undir lög nr. 106/2000 m.s.br., um mat á umhverfisáhrifum, skv. 5. gr. og 5. mgr. 1. viðauka laganna. Alcoa er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum verður unnið af HRV Engineering.
 
Í tillögu að matsáætlun er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst í stuttu máli og með hvaða hætti framkvæmdin samræmist skipulagi svæðisins. Greint er frá, á hvaða þætti framkvæmdar og umhverfis verður lögð mest áhersla í frummatsskýrslu. Einnig er fjallað um hvaða athuganir og rannsóknir eru fyrirhugaðar á vegum framkvæmdaraðila og yfirlit gefið yfir þær upplýsingar sem fyrir liggja og þegar hefur verið aflað. Þá verður fjallað um undirbúning framkvæmda og sett fram yfirlit yfir þá hagsmunaaðila og stofnanir sem samráð verður haft við í matsferlinu. 
Þann 27. nóvember 2008 féllst Skipulagsstofnun á matstillöguna með athugasemdum sem sjá má á vef stofnunarinnar .
 
Matstillöguna má nálgast hér (PDF-skjal, 1,2 Mb) og viðauka við hana hér (PDF-skjal, 4,3 Mb).
 
 
Upplýsingamiðstöð Alcoa á Norðurlandi
Alcoa rekur upplýsingamiðstöð að Garðarsbraut 5 á Húsavík. Forstöðumaður hennar er Kristján Þ. Halldórsson, verkefnisstjóri samfélagsmála fyrir Alcoa á Norðurlandi. Aðalstarf hans er að miðla upplýsingum um Alcoa og hugsanlegt álver á Bakka til hagsmunaaðila á Norðurlandi.  Sími í upplýsingamiðstöðinni er 470-7403.
 
 
Borgarfundur á Húsavík 3. apríl 2008
Norðurþing stóð fyrir borgarafundi um álver á Bakka á Fosshóteli, Húsavík, fimmtudaginn 3. apríl síðastliðinn. Hátt í 500 manns sóttu fundinn og hlýddu á erindi fyrirlesara frá Norðurþingi,
Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga, Landsneti, Landsvirkjun, HRV og Alcoa um undirbúning og stöðu mála varðandi álver á Bakka. Skoða frétt 
 
Fjórir einblöðungar um sem dreift var á fundinum (eitt PDF skjal, 870 kb):
Nýir tímar á Austurlandi
Fjarðaál - flaggskip Alcoa
Ný tækifæri með álveri á Bakka
Orka fyrir álver á Bakka
 
Kynningar sem fluttar voru á fundinum:
Kynning Tryggva Finnsonar, framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga hf. (PDF 427 kb )
Kynning Árna Jóns Elíassonar hjá Landsneti (PDF 3.668 kb )
Kynning Árna Gunnarssonar hjá Landsvirkjun (PDF 956 kb )
Kynning Gauks Hjartarsonar, skipulags- og byggingarfulltrúa (PDF 584 kb )
Kynning Kristjáns Þ. Halldórssonar, verkefnisstjóra samfélagsmála hjá Alcoa á Norðurlandi (PDF 1.523 kb )
 
Kristján Þ. Halldórsson kynnti stöðu mála fyrir hönd Alcoa á fundinum á Húsavík. Einnig voru komnir hingað til lands vegna fundarins þeir Louis- Régis Tremblay; aðstoðarframkvæmdastjóri nýverkefna í álframleiðslu hjá Alcoa og leiðtogi Norðurlandsteymis fyrirtækisins, Patrick Grover; forstöðumaður öryggis- og umhverfismála nýverkefna í álframleiðslu hjá Alcoa og Wade Hughes, forstöðumaður samfélagstengsla vegna nýverkefna í álframleiðslu. Í máli þeirra kom fram að Alcoa muni á næstu vikum leggja fram tillögu að matsáætlun fyrir um 250.000 tonna álver á Bakka og hefja rannsóknir á umhverfisáhrifum. Einnig kom fram að óskastaðan er að í framtíðinni verði næg orka tryggð til að hægt verði að nýta dýrmæta reynslu Alcoa frá Reyðarfirði til fulls með því að byggja álver af sömu stærð og Fjarðaál á Bakka. Þangað til það gerist mun hins vegar verða unnið eftir fyrirliggjandi upplýsingum um mögulega orku og mat á umhverfisáhrifum byggt á þeim grunni
 
Annað ítarefni
Sameiginleg fréttatilkynning iðnaðarráðuneytis, Alcoa og Húsavíkurbæjar dags. 17. maí 2006.
 skoða fréttatilkynningu á vef Iðnaðarráðuneytis

Álver á Norðurlandi - samanburðarskýrsla.
Um er að ræða undirbúningsskýrslu sem ætlað var að kanna hvaða staður hentaði best fyrir áframhaldandi rannsóknir.
skoða eða hlaða niður (á ensku)

 




Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum - Tillaga að matsáætlun


Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Hér má nálgast tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat .
hlaða niður (5 Mb)




Mat á umhverfisáhrifum – Tillaga að matsáætlun fyrir álver á Bakka


Tillaga að matsáætlun frá október 2008. Ársframleiðslugeta allt að 346.000 tonn. PDF-skjal án viðauka (1,2 Mb).
hlaða niður

Ákvörðun Skipulagsstofnunar


Þann 27. nóvember 2008 féllst Skipulagsstofnun á matstillöguna með athugasemdum sem sjá má á vef stofnunarinnar.
fara á vef Skipulagsstofnunar

Viðauki


Viðauki við tillögu að matsáætlun fyrir álver á Bakka frá október 2008 (4,4 Mb).
hlaða niður


Smelltu á myndina til þess að stækka hana.



Skrifstofan er á annarri hæð í þessu húsi að Garðarsbraut 5 í Húsavík.

Upplýsingamiðstöð Alcoa á Norðurlandi


Alcoa rekur upplýsingamiðstöð að Garðarsbraut 5 á Húsavík. Forstöðumaður hennar er Kristján Þ. Halldórsson, verkefnisstjóri samfélagsmála fyrir Alcoa á Norðurlandi. Aðalstarf hans er að miðla upplýsingum um Alcoa og hugsanlegt álver á Bakka til hagsmunaaðila á Norðurlandi.  Sími í upplýsingamiðstöðinni er 470-7403.
skoða frétt


Smelltu á myndina til þess að stækka hana.



Á fimmta hundrað manns sóttu fundinn á Húsavík og hér má sjá hluta gesta, m.a. nokkra alþingismenn kjördæmisins.

Borgarfundur á Húsavík 3. apríl 2008


Norðurþing stóð fyrir borgarafundi um álver á Bakka á Fosshóteli, Húsavík, fimmtudaginn 3. apríl 2008. Hátt í 500 manns sóttu fundinn og hlýddu á erindi fyrirlesara frá Norðurþingi, Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga, Landsneti, Landsvirkjun, HRV og Alcoa um undirbúning og stöðu mála varðandi álver á Bakka.
skoða frétt

Alcoa tekur þátt í íslenska djúpborunarverkefninu


Alcoa styrkir íslenskar rannsóknir á djúpborunum til raforkuframleiðslu. Fyrirtækið telur að djúpboranir gætu orðið stórt  skref í þá átt að nota jarðvarmaorku um allan heim.
skoða frétt

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina