Skilyrði fyrir styrkveitingu
Í flestum tilfellum eiga starfsmenn Stuðningssjóðs Alcoa, sem starfa hjá Alcoa Fjarðaáli, frumkvæði að því að leita að og auðkenna þau félög sem uppfylla kröfur sjóðsins um tilgang, stjórnun, reynslu og hæfni til að veita viðeigandi samfélagsþjónustu og verkefni. Þó er tekið á móti örfáum umsóknum árlega þar sem félög sem telja sig vera með verkefni sem uppfylli skilyrðin hér fyrir neðan eiga frumkvæði að því að senda inn umsókn. Í öllum tilfellum þarf Alcoa Fjarðaál að styðja umsóknir sem berast sjóðnum frá Íslandi og því fara allar umsóknir í gegnum fyrirtækið. Verkefni sem sótt er um stuðning fyrir þarf að falla að einum af þeim málaflokkum sem taldir eru upp hér á eftir. Verkefni og félög á eða við nærsvæði Alcoa Fjarðaáls njóta forgangs þegar veittur er stuðningur úr Stuðningssjóði Alcoa. Vinsamlega athugið að Stuðningssjóður Alcoa er skráður sem góðgerðarfélag í Bandaríkjunum og að einungis þau félög sem teljast vera í líknarstarfsemi eða góðgerðarstarfsemi og starfa ekki í gróðaskyni samkvæmt bandarískum lögum („public charity“, „tax exempt“) geta notið stuðnings frá sjóðnum. Að öllu jöfnu veitir Stuðningssjóðurinn eftirtöldu ekki stuðning:
- Einstaklingum
- Félögum og verkefnum sem hafa það markmið að hafa áhrif á lög eða kosningu í opinber embætti
- Trúarfélögum sem einungis þjóna einum trúarhópi
- Trúartengdum verkefnum
- Viðburðum og átaksverkefnum sem hafa þann tilgang að lækka rekstrarhalla eða búa til rekstrarvarasjóð
- Fjáröflunum (viðburðum, miðum, auglýsingum, gerð söluhluta o.s.frv.)
- Ferðum, ráðstefnum, námskeiðum, hátíðum eða öðrum eins dags viðburðum, nema þeir séu hluti af viðurkenndu verkefni.
- Kynningarmyndum, myndböndum eða rannsóknarverkefnum
- Óbeinum kostnaði eða kostnaði við yfirbyggingu
- Sjóðum í einkaeign
Stuðningssjóður Alcoa hefur skilgreint fjóra málaflokka sem verkefni verða að falla að til að fá stuðningsfjármagn úr sjóðnum: 1. Verndun og sjálfbærni Alcoa vill sýna í verki stuðning við verndun náttúrunnar með því að mennta ungt fólk, vinna að verndun skóga, hvetja til fræðslu um stefnumótun og vekja athygli á tengslunum milli viðskipta og umhverfisins. Verndun og sjálfbærni haldast í hendur. Þau stefnumál sem Alcoa hefur sett sér varðandi umhverfi, öryggi og heilsu byggjast á grundvallarreglum um sjálfbæra þróun – að umhverfis-, öryggis- og heilsumál, samfélagsleg ábyrgð og fjárhagsleg afkoma skipti allt jafn miklu máli. Þetta tryggir að fyrirtækið geti séð samfélaginu fyrir vörum og þjónustu án þess að hafa áhrif á möguleikann fyrir núverandi eða komandi kynslóðir að auka lífsgæði sín og njóta náttúruauðlinda og fegurð þeirra. Stuðningssjóður Alcoa við verkefni sem falla að þessum málaflokki miðast við fjóra tiltekna undirflokka:
- Ungmennastarf við náttúruvernd – að vekja hjá ungu fólki forvitni og gagnrýna hugsun, ásamt góðum vinnubrögðum og fagþekkingu. Að gefa ungmennum möguleika á þeirri reynslu, menntun og virðingu fyrir náttúrunni sem þróar næstu kynslóð af fólki með ábyrgðartilfinningu fyrir umhverfinu og umheiminum, tilbúið í hvaða starf sem er.
- Skógrækt – að styðja gróðursetningar- og skógræktarverkefni.
- Þróun stefnumála – að veita náttúruverndarsamtökum stuðning og vinna með þeim til að tryggja að verkefni til verndar náttúrunni séu faglega unnin.
- Viðskipti og umhverfið – að styðja við menntunarverkefni og leiðbeina hvernig á að skapa „lærdómsumhverfi“ sem stefnir að stöðugum endurbótum og meðvitaðri hugsun um nýtingu náttúruauðlinda.
2. Örugg og heilsuhraust börn og fjölskyldur Alcoa vill leggja sitt af mörkum til að börn og aðstandendur þeirra hafi þau tækifæri, kunnáttu og þjónustu sem þarf til að tryggja heilsu og öryggi heima fyrir, í samfélaginu og á vinnustað. Heilsa og öryggi eru umfangsmikil hugtök á heimsmælikvarða. Þess vegna hefur Stuðningssjóðurinn reynt að þrengja þau niður og einbeita sér að málum sem varða öryggi og heilsu barna og fjölskyldna þeirra. Þá eru aðallega þrjú málefni sem kemur til greina að styrkja:
- Unnið gegn ofbeldi og skaða – verkefni sem beinast að því að minnka hættuna á beinum og óbeinum skaða á börnum og fullorðnu fólki, gegn ofbeldi og misnotkun á konum og börnum, og efla andlega og líkamlega heilsu og velferð fullorðinna og barna.
- Heilsutengd menntun, heilsuefling og slysavarnir – efling í áttina að bættri heilsu, m.a. með því að bæta aðstöðu til líkamsræktar í samfélaginu. Að auðvelda fólki aðgöngu að heilbrigðisþjónustu sem ekki fær hennar notið.
- Aukið aðgengi fatlaðra – að gera fötluðum kleift að taka virkan þátt í samfélaginu og lifa óháðir öðrum.
3. Alþjóðleg menntun og starfshæfni
Mikilvægt er að auka möguleika nemenda og fullorðins fólks á tæknisviðum sem tilheyra starfsemi Alcoa til að tryggja að fólk með mismunandi bakgrunn geti aflað sér fræðslu og sé tilbúið til vinnu hvar sem það er í heiminum. Nú á tímum er fjöldi fólks farinn að starfa fjarri æskustöðvum sínum. Af þeim sökum verður maður að vera tilbúinn til að starfa undir ýmsum kringumstæðum víðs vegar um heiminn eða með starfsfélögum af ólíkum uppruna. Stuðningssjóður Alcoa lítur á menntun og starfsþjálfun á alheimsmælikvarða með þeirri trú að nemendur og fullorðið fólk með alþjóðlega reynslu og skilning sé betur hæft til að blómstra á vinnumarkaði sem stöðugt verður fjölbreyttari og flóknari. Þar sem vísindi, verkfræði, tæknifræði og viðskipti gegna stóru hlutverki í heimi Alcoa, beinir Stuðningssjóðurinn sér að því að skapa góðan grundvöll fyrir öll börn og fullorðna í þeim samfélögum þar sem fyrirtækið er með starfsemi til þess að afla sér menntunar á þessu sviði og á vinnustað sínum, og þannig auka menntunarmöguleika þeirra ásamt atvinnumöguleikum til framtíðar. Af þessum sökum tekur Stuðningssjóður Alcoa til greina átta atriði innan þessa málaflokks
- Aðgengi og aðhald – styður verkefni sem leitast við að fá börn og fullorðna frá efnaminni heimilum bakgrunn til þess að standa jafnfætis öðrum í menntun og á vinnustað.
- Verkmennt – styður verkefni sem snúa að verkmennt, endurmenntun og starfsþjálfun fólks og hafa í för með sér að einstaklingurinn öðlast meiri þekkingu og lærir betri verktækni sem gerir hann samkeppnishæfan á síbreytilegum vinnumarkaði.
- Starfsþekking og þjálfun í viðskiptum og framleiðslu – styður verkefni sem snúa að viðskiptageiranum og þekkingarmiðlun og auðvelda aðgang að þeirri grunnmenntun sem liggur að baki tækni, viðskiptum, verkfræði og vísindum.
- Aukin þátttaka í stærðfræði og vísindum – styður verkefni sem fjölga möguleikum fyrir konur og minnihlutahópa í skóla og á vinnustað.
- Fjölbreytni á vinnumarkaði – styður verkefni sem leiða til þess, með breytingum á námsskrá, tilraunaverkefnum eða rannsóknum, að nemendur eða starfsmenn tileinki sér alþjóðlegan hugsunarhátt og beri virðingu fyrir öðrum menningarhópum og siðum.
4. Samstarf fyrirtækja og samfélags
Aukin meðvitund um samspil fyrirtækja og frjálsra félagasamtaka í hverju samfélagi til eflingar starfsemi beggja, og þróun mikilvægra sambanda milli félagasamtaka, atvinnurekenda, sveitarfélaga og ríkisins. Þessi málaflokkur beinist að viðskipta- og samfélagsverkefnum sem renna stoðum undir frjáls félagasamtök í þeim samfélögum sem Alcoa er með starfsemi í, og veita stuðning verkefnum sem njóta góðs af samvinnu fyrirtækja og félagasamtaka. Markmið Stuðningssjóðsins er að tryggja að frjáls félagasamtök í samfélögum Alcoa, sem vinna að málefnum sem Alcoa og Stuðningssjóður Alcoa telja mikilvæg, nái hámarksárangri í starfsemi sinni, stjórnun og hinum ýmsu verkefnum sem þau taka sér fyrir hendur. Stuðningssjóður Alcoa tekur helst til greina tvö sérstök svið innan þessa málaflokks:
- Sterk, heilbrigð og áreiðanleg félagasamtök – stuðningur við markmiðasetningu, þjálfun í starfsmannahaldi, stjórnendaþjálfun eða annars konar styrkveiting sem beinist að því að bæta heildarstarfsemi frjálsra félagasamtaka.
- Stuðningur við samstarf milli félagslegra stofnana og viðskipta – stuðningur m.a. við sjálfboðavinnu frjálsra félagasamtaka, staðbundin verkefni sem leiða saman fólk úr opinbera geiranum, einkageiranum og samfélaginu í hópa sem ræða atvinnuþróun, og hvetja aðra styrktaraðila til þátttöku með því að veita styrk á móti þeirra framlagi.
|
 |

Dæmi: Stuðningur á Jamaica

 Árið 2004 varði Stuðningssjóður Alcoa 275.000 USD (rúmum 17 milljónum íslenskra króna) til uppbyggingar og hjálparstarfs á Jamaica en í Clarendon á sunnanverðri eyjunni rekur Alcoa báxíðnámu og súrálsframleiðslu.
skoða frétt




Dæmi: Stuðningur við HSA

 Stuðningssjóður á Alcoa veitti Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) fjárstyrk að upphæð tæplega fimm milljónir króna til kaupa á fullkomnum stafrænum myndvinnslubúnaði.
skoða frétt
|
 |