Samfélagsstyrkir veittir 2009
Að venju var auglýstur umsóknarfrestur fyrir fyrri styrkveitingu ársins 2009 til 10. mars. Alls bárust 55 umsóknir sem sérstök nefnd skipuð fulltrúum úr sveitarfélaginu og Alcoa fjallaði um. Tilkynnt var um styrkúthlutun í apríl en alls hlutu 17 aðilar styrki að upphæð samtals 3.000.000 króna.
LungA, Seyðisfirði - Listahátíð unga fólksins 500.000
Björgunarsv. Ísólfur, Sey. - Kaup á snjóbíl 250.000
Samt. um austfirskar krásir - Matreiðslukeppni 200.000
Tónlistarfél. Djúpavogs Hammond hátíðin 100.000
Björgunarsv. Hérað - Kaup á bíl 200.000
Björgunarsv.Gerpir - Ferðastyrkur á landsmót Landsbj. 200.000
Dropinn, sykursjúk börn - Sumar- og fræðslubúðir 200.000
RKÍ, Fjarðabyggð - Stuðningur v. innflytjendur 200.000
Fimleikadeild Hattar - Áhaldakaup 200.000
Kayakklúbburinn KAJ - Sjókayakhátíð Egils rauða 150.000
Leikfélag Fljótsdalshéraðs - Uppsetning á leiksýningu 150.000
Valberg ehf - Fiskvinnslusafn Stöðvarfirði 150.000
Blús Rokk og Jasskl. Nesi - Kaup á hljóðkerfi 110.000
Blakdeild Þróttar - Styrkur til félagsstarfs 100.000
Dansfélagið Fiðrildin - Almenn starfsemi 100.000
Leitarhundar, Landsbjörg - Flytja inn dómara v/þjálfunar 90.000
Björg Lárusdóttir - Kaffistofa Samhjálpar, Rvík. 50.000
Samtals kr. 3.050.000
Að auki voru veittar 100.000 kr. til „Testosterone"-sýningar í menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og 350.000 kr. til Fjarðaálsmótsins í fótbolta.
Umsóknarfrestur fyrir seinni styrkveitingu ársins rennur út þann 10. september 2009.