 |
 |
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
Yfirlit
Við tökum vel á móti starfsmönnum
Alcoa er gildisdrifið heimsfyrirtæki sem leitast við að skara fram
úr á öllum sviðum.
Árangur af starfsemi Alcoa er m.a. mældur út frá
velferð starfsmanna og
umhverfi, heilsa og
öryggi hafa ávallt forgang við ákvarðanatöku.
Góðir starfsmenn eru grundvallarþáttur
Við hjá Alcoa Fjarðaáli fáum gildi Alcoa í vegarnesti.
Við ætlum að búa til öruggan
og góðan vinnustað, veita starfsmönnum hvatningu, laða fram
hið besta hjá
hverjum og einum og umbuna þeim sem standa sig vel í starfi.
þeim sem verða ráðnir
til starfa hjá Alcoa Fjarðaáli opnast jafnframt
leið að stórum, alþjóðlegum
vinnustað innan vébanda Alcoa.
Stöðugildi hjá Alcoa Fjarðaáli
Hjá Alcoa Fjarðaáli verða 383 stöðugildi til lengri
tíma, en að auki
verður annar eins fjöldi nýrra starfa til í nærsamfélaginu
í tengdum iðnaði og þjónustu. Á meðan á
undirbúningi og gangsetningu
álversins stendur verða stöðugildi innan fyrirtækisins þó
fleiri;
einhverjir verða fengnir í tímabundin verkefni og jafnframt mun hópur
sérhæfðra álversstarfsmanna úr erlendum
systurálverum Alcoa Fjarðaáls vera til aðstoðar.
|
 |
|
|
 |