alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Framtíðarsýn og gildi Alcoa 
Framtíðarsýn og gildi Alcoa
Siðareglur Alcoa
Mannréttindi
Markmið Alcoa er að vera besta fyrirtæki í heiminum, í augum viðskiptavina okkar, starfsmanna, hluthafa, almennings og þeirra samfélaga sem við störfum í. Við teljum okkur geta náð því besta fram í okkur öllum með því að hafa gildi fyrirtækisins í heiðri:
Heilindi
Starfsemi Alcoa byggist á heilindum starfsmanna. Við erum opin, heiðarleg og áreiðanleg í samskiptum okkar við viðskiptavini, birgja, samstarfsfólk, hluthafa og samfélög þar sem áhrifa af starfsemi okkar gætir.

Umhverfi, öryggi og vinnuvernd
Við setjum öryggið á oddinn og berum heilsu og velferð einstaklingsins fyrir brjósti, samtímis því að standa vörð um umhverfi og lífríki.

Viðskiptavinurinn
Með sífelldum nýjungum í vörum og þjónustu sköpum við aukið virði fyrir viðskiptavini okkar og stuðlum að því að þeir nái betri árangri.

Afburðir
Við leitumst í hvívetna við að skara fram úr í öllu sem við gerum, á hverjum degi.

Starfsmenn
Við störfum í vinnuumhverfi sem er opið fyrir breytingum og nýjum hugmyndum, leggjum áherslu á virðingu fyrir einstaklingnum og jöfn tækifæri til að ná árangri í starfi.

Arðsemi
Afkoma af starfsemi okkar er góð, hún leggur grunn að lengri tíma vexti fyrirtækisins og skilar hluthöfum framúrskarandi arðsemi. 

Ábyrgð
Við berum ábyrgð, sem einstaklingar og sem hópur, á hegðun okkar, athöfnum og afleiðingum þeirra.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina