 |
 |
|
 |
 |
 |
 |
| Siðareglur Alcoa br> |
 |
 |
 |
 |
 |
Heilindi
- Við lifum og störfum í samræmi við gildi okkar.
- Við komum ávallt fram af heilindum.
- Við stöndum við þau loforð sem við gefum.
- Við höfum sjálfstraust og kjark til að biðja um aðstoð.
- Við ætlumst til þess að allir starfsmenn komi fram af heilindum og líðum ekki siðferðilega ámælisverða breytni.
- Við forðumst hagsmunaárekstra en gerum grein fyrir því ef þeir koma upp.
- Við væntum þess að viðskiptavinir okkar, birgjar og aðrir sem við eigum viðskipti við komi fram af heilindum.
- Við eigum opin boðskipti við einstaklinga og samfélög um málefni sem snerta hagsmuni þeirra.
Umhverfi, öryggi og vinnuvernd
- Mannslíf eru okkur dýrmætari en allt annað og við stýrum áhættu í samræmi við það.
- Við vinnum stöðugt að því að bæta aðferðir okkar til að vernda umhverfið, heilsu og öryggi starfsmanna, til að ná því markmiði okkar að verða slysalaus vinnustaður.
- Við sláum ekki af kröfum um öryggi, umhverfis- og heilsuvernd til að þjóna markmiðum um hagnað eða framleiðni.
- Við förum að lögum og gerum meiri kröfur til okkar sjálfra og þjónustuaðila okkar en lög gera þegar ástæða er til
- Við stuðlum að sjálfbærri þróun með því að samþætta annars vegar ákvörðunarferla fyrirtækisins og hins vegar samfélagslega ábyrgð, efnahagslega velferð og umhverfisvernd.
- Við mælum og metum árangur okkar og erum opin og gangsæ í boðskiptum okkar.
- Við seljum og notum öryggar og áreiðanlegar vörur og þjónustu.
- Við notum þekkingu okkar á umhverfis-, heilsuverndar- og öryggismálum til að stuðla að velferð þeirra samfélaga þar sem við erum að störfum.
- Við erum öll ábyrg fyrir því að gildum okkar og siðareglum sem varða umhverfi,heilsu og öryggi sé fylgt.
Viðskiptavinurinn
- Við skiljum þarfir viðskiptavinaokkar og reynum stöðugt að mæta þeim og gera gott betur gegnum ABS.
- Við byggjum traust langtímasambönd við alla viðskiptavini okkar.
- Við veitum öllum viðskiptavinum okkar óaðfinnanlega þjónustu hvar sem þeir eru í heiminum og óháð því hvort ein eða fleiri starfseiningar fyrirtækisins koma við sögu.
- Við erum leiðandi á markaði.
- Við ástundum nýsköpun í vöru, þjónustu og upplýsingagjöf.
- Við þróum og viðhöldum skýrri vörumerkjaásýnd.
- Við þróum og viðhöldum öflugu skipulagi til að tryggja að viðskipti okkar gangi vel fyrir sig.
Afburðir
- Við setjum okkur stöðugt markmið um að skara fram úr
- Við ætlumst til þess að starfsemi okkar skari fram úr, áttum okkur á því þegar hún gerir það og umbunum þeim sem eiga heiðurinn.
- Við hámörkum árangur okkar með því að nota aðferðir og kerfi okkar á réttan hátt og með því að vera fljót að tileinka okkur þær leiðir sem best hafa reynst.
- Við förgum sorpi og úrgangi með hraði á þeim stað þar sem þau verða til.
- Með stöðugri nýsköpun reynum við að færa út mörk hins mögulega.
- Við tileinkum okkur hugarfar sem hæfir örum breytingum.
- Við leitumst við að skara fram úr með því að lifa og starfa samkvæmt gildum okkar.
- Starfsfólk okkar hefur áhrif, við hlustum á það og lærum af því.
Starfsmenn
- Við komum ávallt fram við hvert annað af kurteisi og virðingu.
- Við leggjum okkur fram um að skilja hugmyndir og tillögur hvert annars.
- Við kunnum að meta fjölbreytileika og einstaklingsmun.
- Við sköpum okkur tækifæri og nýtum þau sem gefast til að vaxa og þróast.
- Við leitum eftir og greiðum fyrir breytingum.
- Við endurskoðum stöðugt vinnubrögð okkar til að koma í veg fyrir sóun og auka verðmæti starfseminnar.
- Við gagnrýnum hvert annað á jákvæðan og uppbyggilegan hátt til að bæta frammistöðu okkar sem einstaklinga og semliðsheildar.
- Við höfum eðlilegt jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
- Við látum gott af okkur leiða í þeim samfélögum þar sem við búum og störfum, með því að vera virkir þátttakendur og leiðtogar.
Arðsemi
- Við skiljum hvernig störf okkar hafa áhrif á afkomu fyrirtækisins.
- Við komum í veg fyrir sóun á hverjum degi og drögum þannig úr kostnaði.
- Við gerum vöxt fyrirtækisins mögulegan með því að afla tekna umfram kostnað.
- Við vinnum staðfastlega að lífrænum vexti fyrirtækisins með því að þjóna viðskiptavinum okkar á framúrskarandi hátt.
- Við stundum stefnumiðuð kaup á öðrum fyrirtækjum og sameinum þau heildinni á árangursríkan hátt.
- Við gerum grein fyrir fjárhagslegri afkomu fyrirtækisins á heiðarlegan hátt og miðlum upplýsingum um hana bæði innan fyrirtækisins og utan.
- Við fórnum ekki gildum okkar fyrir gróðavon.
|
 |
|
|
 |