20. mars 2019

Snjallvæðing, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið – þriðja nýsköpunarmót Álklasans

Nýsköpunarmót Álklasans var haldið í þriðja skipti í gær, þriðjudaginn 19. mars í hátíðarsal Háskóla Íslands. Að mótinu stóðu Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Samtök iðnaðarins, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samál og Álklasinn. Fundarstjóri á mótinu var Dagmar Ýr Stefánsdóttir, yfirmaður samskipta og samfélagsmála hjá Fjarðaáli.

Snjallvæðing, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið voru ofarlega á baugi í þeim erindum sem flutt voru á mótinu og endurspegluðust þær áherslur í þeim fjórum nemendaverkefnum sem fengu hvatningarviðurkenningu.

Boðið var upp á áhugaverð erindi tengd áliðnaði en meðal flytjenda var Guðmundur Ingi Einarsson sérfræðingur í iðnstýringum hjá Fjarðáli sem sagði frá nýsköpunarverkefni varðandi sjálfvirka þekjun skauta í rafgreiningarkerum sem er verið að þróa hjá Fjarðaáli.

Guðbjörg Óskarsdóttir, framkvæmdarstjóri Álklasans veitti viðurkenningarnar og vakti af því tilefni máls á hugmyndagátt á heimasíðu Álklasans, þar sem háskólanemar geta sótt hugmyndir að verkefnum.  Að hvatningarviðurkenningunni standa fyrirtækin, Mannvit, Efla, Hamar, Snókur, Rio Tinto, Alcoa Fjarðaál, Norðurál og Landsbankinn, en auk þess bjó Álverið í Garðabæ, sem sérhæfir sig í yfirborðsmeðhöndlun á áli, til álviðurkenningarskildi handa viðurkenningarhöfum.

Nemendurnir sem fengu hvatningarviðurkenningar í ár eru:  

  • Caroline Mary Medion (HR): Improving Current Efficiency in L-T Aluminum Electrolysis with Vertical Inert Electrodes.
  • Diljá Heba Petersen (HÍ): Endurnýtingarmöguleikar slaggs frá kísiljárnframleiðslu.
  • Eymar Andri Birgisson (HR): Sjálfvirknivæðing á kerviðgerðum með tölvusjón
  • Hinrik Már Rögnvaldsson (HÍ): Flokkunarmódel planaðrar áltöku.

Í kaffihléi gafst gestum færi á því að berja íslenska álbílinn Ísar augum en hann var frumsýndur á Nýsköpunarmóti Álklasans fyrir tveimur árum síðan og hefur nú tekið miklum breytingum.

Álklasinn var stofnaður árið 2015 og stendur saman af um 40 fyrirtækjum og stofnunum í tengdum ál og kísiliðnaði. Þetta er í þriðja sinn sem Nýsköpunarmót Álklasans er haldið en að því standa Álklasinn, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök iðnaðarins og Samál.

 

Verdlaunahafar2

Fjórir nemendur hlutu hvatningarviðurkenningu Álklasans í ár, frá vinstri: Brjánn Jónsson faðir Diljár Hebu Petersen (HÍ), Caroline Mary Medino (HR), Eymar Andri Birgisson (HR), Hinrik Már Rögnvaldsson (HÍ)


Verdlaunahafar2

Nýsköpunarmót Álklasans var vel sótt en snjallvæðing, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið voru ofarlega á baugi í erindum mótsins.  


Verdlaunahafar2

Íslenski álbíllinn Ísar hefur tekið miklum breytingum síðan hann var frumsýndur fyrst á Nýsköpunarmóti Álklasans fyrir tveimur árum síðan.

 

Gudmundur

Guðmundur Ingi Einarsson sérfræðingur í iðnstýringum hjá Fjarðáli sagði frá nýsköpunarverkefni varðandi sjálfvirka þekjun skauta í rafgreiningarkerum sem er verið að þróa hjá Fjarðaáli.



Verdlaunahafar2

Fundarstjóri á mótinu var Dagmar Ýr Stefánsdóttir, yfirmaður samskipta- og samfélagsmála hjá Fjarðaáli.


Verdlaunahafar2

Nýsköpunarmót Álklasans var vel sótt en snjallvæðing, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið voru ofarlega á baugi í erindum mótsins.  


Verdlaunahafar2

Handhafar hvatningarviðurkenningar Álklasans ásamt fulltrúum nokkurra styrktaraðila:
Neðri röð frá vinstri: Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir (Álklasinn), Gunnar Sv. Gunnarsson Mannviti,  Brjánn Jónsson faðir Diljár Hebu Petersen (HÍ), Einar Friðgeirsson (Norðuráli) Brynjar Baldursson (Eflu), Caroline Mary Medino (HR), Sigurður Magnús Garðarsson (HÍ)  Eymar Andri Birgisson (HR), Rannveig Rist (Rio Tinto), Hinrik Már Rögnvaldsson (HÍ), Magnús Þór Ásmundsson (Alcoa Fjarðaál) og  Adrian Freyr Rodriguez (Hamar).