04. mars 2019

Alcoa Fjarðaál auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki

Tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti afhendir Alcoa Fjarðaál styrki til ýmiss konar samfélagsverkefna á Austurlandi. Umsóknarfrestur um styrk í vorúthlutun 2019 rennur út þann 10. mars nk.

Framtíðarhagsmunir Alcoa Fjarðaáls og samfélagsins fara saman. Alcoa leggur sitt af mörkum á hverju ári til að stuðla að framgangi góðra mála á Austurlandi í eftirfarandi flokkum:

  • Umhverfi og náttúruvernd
  • Öryggi og heilsa
  • Menntun og þjálfun
  • Menning, tómstundir og félagsstörf

Vinsamlegast skoðið síðu um samfélagsstyrki til þess að hlaða niður umsóknareyðublaði.