Tengdar síður



Alcoa in Iceland
áfram

Alcoa Primary Aluminum - North America
áfram

At a Glance



Reyðarfjörður
Ísland

Tegund fyrirtækis
Álframleiðsla


Reyðarfjörður, Fjarðabyggð
Álver Alcoa Fjarðaáls verður um 5 km. austur af þéttbýlinu á Reyðarfirði, sem áður hét Búðareyri, en þar búa 920 manns. Bærinn dregur nafn sitt af Reyðarfirði sem er þriðji dýpsti fjörður á Íslandi og þar af leiðandi einstaklega hentugur fyrir siglingar stærri skipa sem flytja súrál til álversins og  fullunnið ál til útlanda.
 
Næstu nágrannabæir eru Eskifjörður sem er í 15 km. fjarlægð frá Reyðarfirði,  með rúmlega 1000 íbúa og Neskaupstaður en þangað eru 37 km. frá Reyðarfirði, með tæplega  1.500 íbúa. Fáskrúðsfjörður er einnig í nágrenninu eða 18 km. frá Reyðarfirði en þar búa um 670 manns.  Fáskrúðsfjarðargöngin tengja saman Reyðarfjörð og Fáskrúðsfjörð. Íbúar í Fjarðabyggð eru því yfir 4000, en það er stærsta sveitarfélag á Austurlandi. Aðrir bæir í nágrenninu eru til að mynda Egilsstaðir sem eru um 34 km. frá Reyðarfirði.
 
Álverslóðin
Lóðin sem var valin undir álver Alcoa Fjarðaáls liggur á milli þéttbýlisins í Reyðarfirði og Eskifjarðarbæjar.   Þangað eru 5 km. frá Reyðarfirði en um 10 km. frá Eskifirði.  Hún er að mestu leyti á svæði sem kennt er við bæinn Hraun. Bæir í nágrenninu eru m.a. Framnes, Sómastaðir, Flateyri og Hólmar. Enn eru ábúendur að Framnesi en þeir stunda ekki búskap.
 
Skrifstofa Alcoa Fjardaáls
Þangað til álversbyggingunni er lokið mun aðalskrifstofa Alcoa Fjarðaáls vera til húsa að Búðareyri 3 í miðbæ Reyðarfjarðar.
 
ALCOA FJARÐAÁL
Búðareyri 3
730 Reyðarfjörður, Iceland
 
Sími  +354 470 7700
Fax   +354 470 7701