alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram

Fréttasafn ársins 2010

20. desember 2010
Samfélagssjóður Alcoa gefur tæpar 6 milljónir króna til hjálparstarfs hér á landi
Þeim fjölgar stöðugt sem leita aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar og í dag fékk stofnunin 50.000 dollara styrk frá Samfélagssjóði Alcoa í Bandaríkjunum til að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í kreppu.
meira

18. desember 2010
Búið að ráða niðurlögum eldsins Sprenging  varð í spennistöð álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði skömmu eftir klukkan fimm í dag.  Við sprenginguna varð eldur laus í spennistöðinni.  Enginn slasaðist í sprengingunni, en rafmagn fór af álverinu. 
meira

17. desember 2010
Milljónasta tonnið framleitt í álveri Fjarðaáls Milljónasta tonnið var framleitt í álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði í vikunni, en framleiðsla hófst í álverinu  í apríl 2007. Verðmæti milljón tonna af áli eru um 265 milljarðar króna miðað við álverð á markaði og gengi dollarans nú, en verðmæti útfluttra afurða frá Fjarðaáli frá upphafi nemur um 260 milljörðum króna.
meira

13. desember 2010
Alcoa Fjarðaál semur við Afl og RSÍ Afl Starfsgreinafélg og Rafiðnaðarsamband Íslands hafa gert samning við Alcoa Fjarðaál um að félagsmenn þessara félaga í álverinu á Reyðarfirði fái greiddar tvær eingreiðslur fjótlega eftir áramót.
meira

8. desember 2010
Losun og endurvinnsla Magn útblástursefna frá álverinu í Reyðafirði  það sem af er árinu, er undir þeim mörkum sem starfsleyfi fyrirtækisins setur.  Allur framleiðsluúrgangur frá álverinu fer til útlanda til endurvinnslu.  Þetta kom fram á íbúafundi sem haldinn var í álverinu í gær. 
meira

8. desember 2010
Metþátttaka í sjálfboðaliðaverkefnum Alcoa Nær helmingur starfsmanna Alcoa um allan heim, tók  þátt í ýmsum sjálfboðaliðaverkefnum á þessu ári. Meira en 29.000 starfsmenn í 24 löndum gáfu vinnu sína til samfélagsins í samtals 1.000 verkefnum. Þeirra á meðal eru rúmlega 100 starfsmenn Fjarðaáls.
meira

2. desember 2010
Skipulagsstofnun skilar áliti vegna álvers á Bakka við Húsavík Skipulagsstofnun hefur birt álit sitt á mati á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka með allt að 346 þúsund tonna ársframleiðslu, Kröfluvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar, háspennulína að Bakka og sameiginlegu mati ofangreindra framkvæmda. 
meira

23. nóvember 2010
Alcoa sjálfbærasta fyrirtækið í Brasilíu Alcoa var á dögunum valið sjálfbærasta fyrirtækið í Brasilíu árið 2010 af tímaritinu Exame. Sjálfbærniverðlaun Exame eru talin þau virtustu í Brasilíu á sviði samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja.
meira

18. nóvember 2010
Meirihluti landsmanna hlynntur áliðnaði Samtök álfyrirtækja á Íslandi tóku formlega til starfa í dag en markmið samtakanna er að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og að auka upplýsingagjöf um áliðnaðinn. Í Capacentkönnun sem gerð var 21.-28. október sl. kemur fram að liðlega 54% landsmanna eru jákvæðir gagnvart íslenskum áliðnaði, liðlega 23% landsmanna eru hlutlausir í afstöðu sinni til iðnaðarins en einungis 22% landsmanna segjast neikvæðir gagnvart áliðnaði hér á landi.
meira

18. nóvember 2010
Fjögurra ára börn fá góða bókagjöf Öll fjögurra ára börn á Austurlandi fá bókina Stafróf dýranna eftir Halldór Á. Elvarsson að gjöf frá bókasöfnum á Austurlandi. Samfélagssjóður Alcoa Fjarðaáls styrkir bókagjöfina.
meira

12. nóvember 2010
Blakkona fær afreksstyrk Sylvía Kolbrá Hákonardóttir, 17 ára blakkona úr Þrótti frá Neskaupstað, hlaut í dag 100 þúsund króna afreksstyrk úr Spretti, afrekssjóði UÍA og Alcoa Fjarðaáls. Sylvía er ein af öflugustu leikmönnum Þróttar og hefur leikið mjög vel með liðinu í Íslandsmóti kvenna í blaki í vetur.
meira

10. nóvember 2010
Fengu rúma milljón þann 10.10.10 Margir notuðu sunnudaginn 10.10.10 til að gera eitthvað eftirminnilegt, til dæmis til að gifta sig. Samfélagssjóður Alcoa sá þennan dag sem skemmtilegt tækifæri til að gleðja aðra og ákvað að færa 10 félagasamtökum í 10 löndum 10 þúsund dollara styrk. 
meira

5. nóvember 2010
Alcoa hvetur til endurvinnslu áldósa með nýrri lausn fyrir iPhone Nýlega tilkynnti Alcoa útgáfu ókeypis hugbúnaðar sem hægt er að nota í iPhone, Ipod touch og iPad sem hvetur neytendur til endurvinnslu áldósa á auðveldan og skemmtilegan hátt.
meira

4. nóvember 2010
Fjarðaál fær símenntunarverðlaun Þekkingarnetsins Alcoa Fjarðaál  fékk  nýlega  símenntunarverðlaun Þekkingarnets Austurlands fyrir virkt fræðslustarf og stuðning við þekkingaruppbyggingu og samfélagsþróun. 
meira

3. nóvember 2010
Milljarða fjárfesting og tugir starfa við nýja kersmiðju Fyrsta skóflustungan að  nýrri kersmiðju Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð var tekin í dag, en stefnt er að því að hún verði tilbúin í ársbyrjun 2012.  Heildarfjárfesting vegna kersmiðjunnar er áætluð um um 3,5 milljarðar króna.
meira

10. október 2010
Nær 400 metrar af bleikum ljósum Súrálsfæribandið í álveri Fjarðaáls við Reyðarfjörð skartar nú bleikum ljósum vegna Bleiku slaufunnar, átaks Krabbameinsfélags Íslands. Þá er einnig bleik lýsing fyrir utan aðalbyggingu Fjarðaáls en þar voru útiljós á jörðinni klædd bleikri filmu.
meira

30. september 2010
Alcoa og Pittsburgh Penguins keppa saman í „grænu” deildinni Alcoa og bandaríska hokkíliðið Pittsburgh Penguins keppa saman að því að stuðla að aukinni endurvinnslu og umhverfisvitund meðal almennings í Bandaríkjunum. Hinn nýi og glæsilegi heimavöllur Penguins, the Consol Energy Center íþróttaleikvangurinn, hefur nú hlotið hina eftirsóttu Gold LEED umhverfisvottun og er þar af leiðandi einn af umhverfisvænustu íþróttaleikvöngum í heiminum.
meira

22. september 2010
Securitas sér áfram um öryggisgæslu í álverinu í Reyðarfirði Alcoa Fjarðaál og Securitas hafa undirritað samning um áframhaldandi víðtæka þjónustu öryggisfyrirtækisins við álverið í Reyðarfirði.
meira

20. september 2010
Rúmlega þúsund gestir á þremur dögum Sýningin Ál 2010 fór fram í Essen í Þýskalandi í síðustu viku og fékk mjög góða aðsókn. Alls heimsóttu um 18 þúsund gestir sýninguna en um 900 fyrirtæki voru með kynningarbás í sýningarhöllinni.
meira

17. september 2010
Alcoa hlýtur gæðavottun fyrir sjálfbærni Alcoa hefur hlotið hina virtu Cradle to Cradle gæðavottun fyrir sérstaklega góðan árangur í sjálfbærni og umhverfsimálum við framleiðslu áls. Þetta var tilkynnt á alþjóðasýningunni Ál 2010 sem nú stendur yfir í Essen í Þýskalandi.
meira

13. september 2010
Alcoa framleiðir álfelgur fyrir Chevrolet bíla General Motors, einn stærsti bílaframleiðandi heims, hefur valið Alcoa til að framleiða sérstaklega léttar álfelgur fyrir nýju línuna af Chevrolet Cruze Eco. Áður hafði GM gert samning við Alcoa um að fyrirtækið framleiddii álfelgur fyrir hinn byltingakennda rafbíl Chevrolet Volt. 
meira

4. september 2010
Alcoa Fjarðaál auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki Alcoa Fjarðaál auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki fyrir síðari hluta ársins 2010. Fyrirtækið úthlutar styrkjum tvisvar á ári, að vori og hausti. Nú í vor veitti Fjarðaál rúmlega 4,6 milljónir króna í styrki til 22 aðila. Ekki eru veittir styrkir til stjórnmálasamtaka, trúfélaga eða til almenns reksturs félaga.
meira

1. september 2010
Flugstjórnarturn á LaGuardia klæddur áli frá Alcoa Nýr og glæsilegur flugstjórnarturn á LaGuardia flugvellinum í New York hefur verið klæddur Reynobond áli frá Alcoa. LaGuardia er einn fjölfarnasti flugvöllur heims. Nýi turninn, sem er 233 feta hár, verður tekinn í notkun nú í haust.
meira

20. ágúst 2010
Sómastaðir opnaðir með viðhöfn Framkvæmdum við endurgerð Sómastaða við Reyðarfjörð er nú lokið og var húsið opnað við hátíðlega athöfn þann 17. ágúst. Samfélagssjóður Alcoa  styrkti framkvæmdirnar með 16 milljóna króna framlagi. Sómastaðir eru í næsta nágrenni við álver Fjarðaáls.
meira

12. ágúst 2010
Mikilvægt að styrkja stærsta þjóðgarð í Evrópu Alcoa á Íslandi hefur veitt samtökunum Vinum Vatnajökuls 87 milljóna króna styrk til starfseminnar. Fyrirtækið hyggst styrka samtökin frekar á næstu árum.
meira

5. ágúst 2010
Klassísk bygging í New York klædd í Alcoa ál Reynobond ál frá Alcoa var valið til að endurklæða framhlið klassískrar byggingar að 100 Park Avenue á Manhattan í New York.
meira

4. ágúst 2010
Alcoa verðlaunað fyrir nýjar álflöskur Alcoa vann til hinna virtu DuPont demantaverðlauna fyrir nýjungar í drykkjarumbúðum. Alcoa vann til verðlaunanna fyrir hinar nýju álflöskur sem fyrirtækið framleiðir í samvinnu við fyrirtækið Exal.
meira

29. júlí 2010
Hagnaður hjá Alcoa Alcoa, móðurfélag Fjarðaáls, skilaði 137 milljónum dala hagnaði, sem samsvarar um 17 milljörðum íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi 2010. Á sama tímabili í fyrra var 454 milljóna dala tap á rekstrinum.
meira

20. júlí 2010
Um 40% af útflutningstekjum Fjarðaáls eftir á Íslandi Alcoa Fjarðaál flutti ál út fyrir að jafnaði 200 milljónir króna á dag í fyrra, miðað við gengi dollarans í desember 2009. Um 40% útflutningstekna fyrirtækisins verða eftir hér á landi.
meira

10. júlí 2010
Útiskólastofur settar upp á Austurlandi Útiskólastofur hafa verið útbúnar við Egilsstaðaskóla og Grunnskólann á Reyðarfirði. Foreldrafélög skólanna og starfsfólk Alcoa Fjarðaáls sáu um uppsetningu þeirra en framtakið var styrkt af Samfélagssjóði Alcoa og er hluti af sjálfboðaliðaverkefnum starfsmanna Fjarðaáls.  Sjóðurinn hefur á undanförnum árum veitt á bilinu 2-3 milljónir króna til svokallaðra ACTION verkefna á Íslandi, en þetta  eru sjálfboðaliðaverkefni, sem Alcoa starfsmenn um allan heim taka þátt í.
meira

30. júní 2010
Starfsmenn Alcoa byggja sólpall við sjúkrahúsið í Neskaupstað Á sólríkum laugardegi í júní mættu 12 starfsmenn Alcoa og fjölskyldur þeirrra, hátt í 30 manns, og byggðu saman veglegan sólpall við fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. Nokkrir starfsmenn sjúkrahússins tóku einnig þátt í sjálfboðastarfinu.
meira

16. júní 2010
Fimmtán sjálfboðaliðar komnir til Puerto Rico Fimmtán  sjálfboðaliðar frá Alcoa eru komnir til Puerto Rico í svokölluðum Earthwatch-leiðangri. Meðal sjálfboðaliðanna er Helgi Laxdal, starfsmaður Fjarðaáls, en hann mun ásamt félögum sínum frá Alcoa vinna að ýmsum umhverfismálum í Puerto Rico. Einnig eru með í för fulltrúar náttúruverndarsamtaka, sem Alcoa bauð að taka þátt, t.d. Ruslan Butovsky frá "Fund for Sustainable Development" í Moskvu og Belen Carro frá University of Coruña, San Ciprian á Spáni.
 
meira

14. júní 2010
Hamfaraflóð orsakar tímabundna lokun álvers Alcoa í Aviles á Spáni Alcoa tilkynnti í dag að fyrirtækið hafi þurft í lok síðustu viku að hætta tímabundið framleiðslu í álveri þess í Aviles á Spáni vegna hamfaraflóða í Asturias-héraðinu á Spáni. Framleiðslugeta álversins í Alvires eru 93.000 tonn á ári.
meira

3. júní 2010
Samfélagssjóðurinn styður umhverfismál á heimssýningunni Hillary Rodham Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti á heimssýningunni í Shanghæ að Samfélagssjóður Alcoa  ætlaði að styðja umhverfisvæna stefnu bandaríska sýningarskálans  á heimssýningunni, sem stendur yfir næstu sex mánuði.  
meira

17. maí 2010
Skila þarf athugasemdum fyrir 14. júní Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum fyrir framkvæmdir vegna álvers á Bakka, virkjana og raflína var kynnt á þremur kynningarfundum á Norðurlandi í byrjun maí og einum í Reykjavík. Mest fjölmenni var á fundinum á Húsavík, en þangað komu um 70 manns.  Samtals komu á fundina rúmlega 100 manns.  
meira

17. maí 2010
Paula Davis tekur við af Meg McDonald Paula Davis hefur verið ráðin forstjóri Samfélagssjóðs Alcoa (Alcoa Foundation). Hún tekur við starfinu af hinni áströlsku Meg McDonald, sem ákvað eftir áralangt starf sem forstjóri sjóðsins, að flytja aftur til Ástralíu.
meira

10. maí 2010
Fimleikakona fær afreksstyrk 10 styrkjum var úthlutað úr Spretti - Afrekssjóði UÍA og Alcoa á Fjarðaálsmótinu á laugardag.
meira

7. maí 2010
Opið hús - Kynning á framkvæmdum á Norðausturlandi Athugun Skipulagsstofnunar er hafin á frummatsskýrslum um mat á umhverfisáhrifum fyrir Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, háspennulínur frá virkjunum að álveri, álver á Bakka og sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra. Í tilefni þess verður opið hús á Hótel Nordica mánudaginn 10. maí nk. kl. 15:00-19:00 þar sem frummatsskýrslur verða kynntar.
meira

30. apríl 2010
Kynningar á frummatsskýrslum á Norðausturlandi Eftirtaldar kynningar verða haldnar á frummatsskýrslum um mat á umhverfisáhrifum fyrir Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, háspennulínur frá virkjunum að álveri, álver á Bakka og sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra:
meira

30. apríl 2010
Stærð álvers á Bakka mun ráðast af orkunni sem verður fáanleg Alcoa, Þeistareykir ehf, Landsvirkjun og Landsnet hafa undanfarin þrjú ár unnið að mati á umhverfisáhrifum fyrir álver á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II og háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka.  Í samræmi við úrskurð umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 hafa fyrirtækin jafnframt í sameiningu unnið að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum þessara fjögurra framkvæmda. 
meira

27. apríl 2010
Um 100 sumarstarfsmenn ráðnir til Alcoa Fjarðaáls Um 100 starfsmenn verða ráðnir í sumarafleysingar hjá Alcoa Fjarðaáli í sumar. Hjá fyrirtækinu starfa um 480 manns, auk rúmlega 300 verktaka
meira

27. apríl 2010
Klaus Kleinfeld nýr stjórnarformaður Alcoa Klaus Kleinfeld, forstjóri Alcoa, var einnig kjörinn stjórnarformaður fyrirtækisins á árlegum hluthafafundi þess á dögunum.
meira

26. apríl 2010
Skipulagsbreytingar hjá Alcoa Fjarðaáli Skipulagsbreytingar hafa nýlega átt sér stað hjá Alcoa Fjarðaáli.
meira

23. apríl 2010
Stækkun á endurvinnslustöð í Tennessee Nýverið vígði Alcoa nýbyggingu við áldósaendurvinnslu fyrirtækisins í Tennessee í Bandaríkjunum, en hún kostaði þrjá milljarða króna. Þessi viðbót við verksmiðjuna eykur vinnslugetu hennar um 50 prósent og skapar 100 ný störf.
meira

13. apríl 2010
Hlaut Gulleggið í ár Sprotafyrirtækið Remake Electric hlaut Gulleggið 2010 með sigri í frumkvöðlakeppni Innovit. Alls voru 300 hugmyndir skráðar til leiks. Alcoa Fjarðaál var meðal þeirra fyrirtækja sem styrktu keppnina í ár. 
meira

13. apríl 2010
Afkoma Alcoa á fyrsta ársfjórðungi 2010 Verulega dregur úr tapi Alcoa samkvæmt uppgjöri fyrirtækisins fyrir fyrsta ársfjórðung 2010. Tap Alcoa fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins nemur 201 milljónum dala af reglulegum rekstri fyrirtækisins eða u.þ.b. 25 milljörðum íslenskra króna
meira

22. mars 2010
Alcoa prófar nýja tækni til að virkja sólarorku Alcoa og rannsóknamiðstöð orkumálaráðuneytis Bandaríkjanna um endurnýjanlega orkugjafa vinna nú að prófunum á nýrri tækni til að virkja sólarorku. Markmiðið er að lækka kostnað við gerð og rekstur sólarspegla til raforkuframleiðslu (e. Concentrating Solar Power technology) og gera þá samkeppnishæfa við aðrar leiðir til orkuframleiðslu.
meira

19. mars 2010
Jeff Clemmensen hlýtur hvunndagshetjuverðlaun starfsmannafélags Alcoa Fjarðaáls Bandarísk hjón sem Jeff Clemmensen, starfsmaður Alcoa Fjarðaáls, aðstoðaði úr ógöngum í Oddsskarði síðasta sumar hafa stofnað styrktarsjóð fyrir „hvunndagshetjur“ Alcoa Fjarðaáls. Starfsmannafélagið Sómi mun árlega veita verðlaunin starfsmanni sem sýnir af sér sérstaka hjálpsemi við náungann. Jeff veitti fyrsta styrknum viðtöku á nýliðinni árshátíð Fjarðaáls.
meira

1. mars 2010
Mikill meirihluti jákvæður gagnvart Alcoa Fjarðáli Í niðurstöðum skoðanakönnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Alcoa á Mið-Austurlandi í október og nóvember síðastliðnum kemur m.a. fram að 78,3% íbúa svæðisins eru jákvæðir gagnvart Alcoa Fjarðaáli.
meira

25. febrúar 2010
Alcoa á Íslandi heyrir nú undir Evrópu Eftir breytingar á skipulagi yfirstjórnar álframleiðslusviðs Alcoa, heyrir Alcoa á Íslandi nú undir Evrópu í stað Kanada áður.
meira

25. febrúar 2010
Tómas Már kjörinn formaður Viðskiptaráðs Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, var kjörinn formaður Viðskiptaráðs á aðalfundi þess 17. febrúar síðastliðinn.
meira

24. febrúar 2010
Bernt Reitan lætur af störfum – John Thuestad tekur við Fyrr í vikunni tilkynnti Klaus Kleinfeld að stjórn Alcoa hafi ráðið Norðmanninn John Thuestad sem aðstoðarforstjóra Alcoa og forstjóra framleiðslusviðs, en hann tekur við starfinu þann 1. mars nk. John tekur við þessari stöðu af öðrum góðum Norðmanni, Bernt Reitan sem lætur nú af störfum eftir 10 ár hjá Alcoa og næstum 40 ár í áliðnaðinum.
meira

23. febrúar 2010
Leikskólabörn fræðast um öryggismál Leikskólabörn frá leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði gáfu Alcoa Fjarðaáli listaverk og fræddust um öryggismál í heimsókn sinni í fyrirtækið nýverið. Heimsóknin var í tilefni af degi leikskólans  6. febrúar, sem haldinn er í tilefni þess að þann dag árið 1950 stofnuðu leikskólakennarar fyrstu samtök sín.
meira

22. febrúar 2010
Alcoa hvetur til aukinnar endurvinnslu Á þessu ári hyggst Alcoa gefa 50.000 endurvinnslutunnur til samtaka og samfélaga í Bandaríkjunum til að stuðla að aukinni endurvinnslu. Gjöfin er liður í sameiginlegu átaki Alcoa og alþjóðlegu álsamtakanna Aluminum Association.
meira

19. febrúar 2010
Litríkt álið frá Alcoa er áberandi í ólympíuþorpinu í Vancouver Nýju íbúðabyggingarnar, þar sem keppendur á leikunum sofa, borða og geta horft á útsendingar sjónvarpsstöðvanna frá leikunum eru klæddar í áberandi appelsínugulum og skærrauðum litum og fara því ekkii fram hjá neinum sem leið eiga um Ólympíuþorpið í Vancouver.
meira

9. febrúar 2010
Alcoa Fjarðaál flutti út vörur fyrir um 74 milljarða árið 2009 Útflutningur Alcoa Fjarðaáls á síðasta ári nam tæplega 600 milljónum bandaríkjadala, sem jafngildir um 74 milljörðum íslenskra króna, miðað við núverandi gengi. Flutt voru út rúmlega 349 þúsund tonn af hreinu áli, álblöndum og álvírum. Verðmæti útflutnings Alcoa Fjarðaáls í fyrra nam því rúmlega 1,4 milljörðum króna á viku, eða rúmlega 200 milljónum króna á dag
meira

8. febrúar 2010
Alcoa hátt á siðferðilista Alcoa greindi frá því í vikunni að fyrirtækið væri efst á lista fyrirtækja í auðlindavinnslu á árlegum lista Covalence sem metur og mælir siðferði og orðstír alþjóðlegra fyrirtækja.
meira

5. febrúar 2010
Vill halda áfram starfsemi á Ítalíu Klaus Kleinfeld, forstjóri Alcoa Inc, segir í bréfi til Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að vilji Alcoa standi til að halda áfram starfsemi á Ítalíu, verði það gert mögulegt.
meira

28. janúar 2010
Ísland efst á umhverfislista Notkun endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi vekur ávallt mikla athygli erlendis. Á nýjum lista yfir umhverfisvænustu lönd heimsins, trónir Ísland nú í efsta sæti með 93,5 stig af hundrað mögulegum.
meira

20. janúar 2010
Samfélagssjóður Alcoa styður hjálparstarf á Haiti Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum (Alcoa Foundation) hefur gefið 100.000 dollara, jafnvirði um 12,5 milljóna króna til bandaríska Rauða krossins vegna hjálparstarfs á Haiti.
meira

18. janúar 2010
Framleiðsla umfram áætlanir Framleiðslan í álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði var meiri í fyrra en áætlanir gerðu ráð fyrir og þrátt fyrir erfitt ár var niðurstaðan í rekstrinum viðunandi. Þetta kemur fram í pistli Tómasar Más Sigurðssonar forstjóra í Álpappírnum, starfsmannablaði fyrirtækisins.
meira

18. janúar 2010
Samfélagssjóður Alcoa styrkir björgunarsveitir á Austurlandi Samfélagssjóður Alcoa í Bandaríkjunum (Alcoa Foundation) hefur ákveðið að styrkja björgunarsveitir á Austurlandi um 100.000 Bandaríkjadali næstu tvö árin, eða sem nemur um 12,5 milljónum króna. Styrkurinn verður stofnframlag í menntunarsjóð björgunarsveitarmanna á Austurlandi. Hafsteinn Viktorsson, framkvæmdastjóri framleiðslu hjá Alcoa Fjarðaáli, afhenti björgunarsveitunum styrkinn í dag, mánudaginn 18. janúar.
meira

13. janúar 2010
Eins og blikandi stjörnur Allir nemendur, rúmlega 200 talsins, í  fyrsta og öðrum bekk  grunnskólanna í Fjarðabyggð,  á Fljótsdalshéraði, Seyðisfirði og í Breiðdalsvík fengu nýverið endurskinsvesti að gjöf frá Fjarðaáli, VÍS og lögreglunni á Austurlandi. Krökkunum þóttu vestin flott og þau lofuðu því að nota þau á hverjum degi
meira

12. janúar 2010
Tap á síðasta ársfjórðungi Alcoa kynnti í gær afkomu fyrirtækisins á fjórða ársfjórðungi 2009. Tekjur fjórðungsins námu 5,4 milljörðum bandaríkjadala, eða um 672 milljörðum íslenskra króna miðað við núverandi gengi, og jukust um 18% frá þriðja ársfjórðungi.
meira

8. janúar 2010
Rúmlega 11 þúsund hafa heimsótt álverið Fjarðaál, álver Alcoa í Reyðarfirði, er vinsæll ferðamannastaður. Á síðastliðnum fimm árum hafa um rúmlega 11 þúsund  manns heimsótt álverið.  
meira

8. janúar 2010
Hrókeringar og skellir! Skákmaðurinn Bjarni Jens Kristinsson og blakkonan Helena Kristín Gunnarsdóttir sem hefur skorað ótal stig með skellum hlutu fyrir skömmu afreksstyrki úr Spretti, styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls og ÚÍA.
meira

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina