Áfram


Prentvæn útgáfa
go

3. nóvember 2010
Milljarða fjárfesting og tugir starfa við nýja kersmiðju

Fyrsta skóflustungan að  nýrri kersmiðju Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð var tekin í dag, en stefnt er að því að hún verði tilbúin í ársbyrjun 2012.  Heildarfjárfesting vegna kersmiðjunnar er áætluð um um 3,5 milljarðar króna.

Meðan á framkvæmdatíma stendur munu 60-80 manns að jafnaði vinna við bygginguna en um 160 þegar umsvifin verða í  hámarki.  Rekstur kersmiðjunnar skapar um sjötíu ný störf til frambúðar. Þetta er til viðbótar þeim 800 störfum sem þegar eru til staðar á álverssvæðinu í Reyðarfirði.
 
Verkfræðistofan Hatch hefur umsjón með byggingunni fyrir Fjarðaál í samstarfi við verkfræðifyrirtækið HRV. Ýmsir fleiri innlendir aðilar munu koma að verkinu. Samið hefur verið við Tandraberg á Eskifirði um jarðvinnu við kersmiðjuna og verið er að ganga frá samningum við aðra verktaka um næstu áfanga verksins.
 
Kersmiðjan skiptist í þrjá hluta, þ.e. kerfóðrunarbyggingu, kerbrotabyggingu og skrifstofubyggingu.  Flatarmál bygginganna verður samtals rúmlega fjögur þúsund fermetrar.  Ál er framleitt í 336 kerum í álveri Fjarðaáls og þau þarf að endurnýja  á 5-7 ára fresti.  Í nýju kerfóðrunarbyggingunni verður mögulegt að fóðra þrjú ker í einu.  Þar verður einnig svæði til að kæla ker, viðgerðaraðstaða og geymslusvæði fyrir ýmsan búnað.  
 
Í kerbrotabyggingunni verða kerin hreinsuð og kerbrotunum komið fyrir í gámum.  Þau verða  send í endurvinnslu til Bretlands og enda sem hráefni í sement.  
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Tómas ávarpar gesti


Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, ávarpar gesti við athöfnina.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Fyrsta skóflustungan


Elías Jónsson, starfsmaður Alcoa tekur fyrstu skóflustunguna.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Hvar verða byggingarnar?


Hvíta svæðið sýnir hvar kersmiðjan kemur til með að rísa suðaustur af miðgangi kerskálans.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Nýju byggingarnar


Þrívíddarteikning af kersmiðjunni suðaustur af miðgangi kerskálans. Grænu húsin eru nýbyggingar. Kerbrotabyggingin (347) er vinstra megin, kerfóðrunarbyggingin (346) hægra megin og skrifstofubyggingin (342) á milli þeirra.