Áfram


Prentvæn útgáfa
go

18. nóvember 2010
Fjögurra ára börn fá góða bókagjöf

Öll fjögurra ára börn á Austurlandi fá bókina Stafróf dýranna eftir Halldór Á. Elvarsson að gjöf frá bókasöfnum á Austurlandi. Samfélagssjóður Alcoa Fjarðaáls styrkir bókagjöfina.

Fyrstu bækurnar voru afhentar á degi íslenskrar tungu, þann 16. nóvember, en þá heimsóttu börn og foreldrar í Neskaupstað bókasafnið í bænum.
 
Tæplega 300 börn fá bókina að gjöf. Markmið verkefnisins er að kveikja áhuga barna á lestri, kynna þeim leyndardóma bókasafnsins og hvetja foreldra til að lesa með börnum sínum. Verkefnið er til tveggja ára og nær því til tveggja árganga.
 
„Það er trú mín að með því að lesa fyrir börn þá víkki sjóndeildarhringur þeirra og opni þeim dyr að miklum töfraheimi sem býr í bókum og sögum. Ég hef því alltaf reynt að gefa mér tíma til að lesa,” segir Halldór Á. Elvarsson, höfundur bókarinnar Stafróf dýranna.
 
Óskar Þór Þráinsson, verkefnisstjóri og forstöðumaður bókasafnsins í Neskaupstað, segir að lestrarstundir foreldra og barna séu ekki bara góðar samverustundir heldur mikilvægar til þess að örva lestraráhuga. „Lestraráhugi er nátengdur lesskilningi, sem kemur síðar, og því er nauðsynlegt að hvetja foreldra til að lesa með börnum sínum. Þannig taka þeir virkan þátt í að efla málþroska og hljóðkerfisvitund barna sinna. Í þessu verkefni náum við til tveggja árganga á forskólaaldri á stóru svæði. Við vonumst til að það skapi umræðugrundvöll milli foreldra og tækifæri til þess að örva börnin og hvetja,“ segir Óskar.
 
Á næstu vikum munu bókasöfnin á Austurlandi bjóða fjögurra ára börnum að koma í heimsókn ásamt foreldrum og þiggja bókina að gjöf. Bókasöfnin sem taka þátt í verkefninu eru í Neskaupstað, á Eskifirði, Vopnafirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Djúpavogi, Seyðisfirði, í Stöðvarhreppi, Breiðdalshreppi og bókasanf Héraðsbúa á Egilsstöðum.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Ánægðir krakkar


Á myndinni sjást nokkur barnanna ásamt Geir Sigurpáli Hlöðverssyni, framkvæmdastjóra hjá Fjarðaáli og Óskari Þór Þráinssyni hjá bókasafninu í Neskaupstað.