 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
12. nóvember 2010
Blakkona fær afreksstyrk
Sylvía Kolbrá Hákonardóttir, 17 ára blakkona úr Þrótti frá Neskaupstað, hlaut í dag 100 þúsund króna afreksstyrk úr Spretti, afrekssjóði UÍA og Alcoa Fjarðaáls. Sylvía er ein af öflugustu leikmönnum Þróttar og hefur leikið mjög vel með liðinu í Íslandsmóti kvenna í blaki í vetur.
Sylvía hefur leikið með unglingalandsliðum Íslands í blaki. Hún keppti með U-19 ára landsliði Íslands á alþjóðlegu móti í Svíþjóð í september og einnig með U-17 ára landsliðinu á Norðurlandamótinu í blaki sem fram fór í Danmörku í október sl. „Ég er mjög stolt að fá þennan afreksstyrk og vil þakka þeim sem studdu mig. Þetta hefur mjög hvetjandi áhrif og mig langar að gera enn betur,“ segir Sylvía ánægð. Hún leikur stöðu uppspilara með hinu sterka liði Þróttar. „Okkur hefur gengið vel í vetur og höfum unnið fyrstu þrjá leikina í Íslandsmótinu. Þetta er þriðja árið mitt með meistaraflokki en við erum með mjög ungt lið og meðalaldurinn er aðeins um átján ára. Við urðum í öðru sæti í Íslandsmótinu síðustu tvö keppnistímabil en nú stefnum við á Íslandsmeistaratitilinn. Mér finnst við hafa alla burði til þess. Það er mikill metnaður hjá okkur stelpunum í liðinu og einnig frábær liðsandi sem skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli líka,“ segir Sylvía en hún stundar nám í Verkmenntaskólanum á Neskaupstað. Mikilvægt framtak fyrir íþróttahreyfinguna Alls var úthlutað 730.000 krónum úr afrekssjóðnum Spretti. Iðkendastyrki að upphæð 50.000 kr. hver hlutu Fannar Bjarki Pétursson, knattspyrnumaður úr Leikni frá Fáskrúðsfirði, Björgvin Jónsson, mótorkrossmaður úr START, Daði Fannar Sverrisson, frjálsíþróttamaður úr Hetti, Erla Gunnlaugsdóttir, frjálsíþróttakona úr Hetti og þær Rannveig Júlía Sigurpálsdóttir, Helena Kristín Gunnarsdóttir og Kristina Apostolova, blakkonur úr Þrótti. Þjálfarastyrk að upphæð 80.000 kr. hlaut Auður Vala Gunnarsdóttir. Félagastyrki hlutu Hestamannafélagið Blær, 70.000 kr., blakdeild Þróttar, 70.000 kr., frjálsíþróttadeild Hattar, 40.000 kr. og fimleikadeild Hattar 20.000 kr. „Afrekssjóðurinn er mjög mikilvægt framtak fyrir íþróttahreyfinguna á Austurlandi. Við höfum átt afar farsælt samstarf við Alcoa Fjarðaál í að efla og styrkja íþróttastarf á Austurlandi,“ segir Hildur Bergsdóttir, framkvæmdastjóri UÍA, en samtals hefur sjóðurinn úthlutað 1,4 milljónum króna á árinu.
|
 |


|
|
|