Áfram


Prentvæn útgáfa
go

10. nóvember 2010
Fengu rúma milljón þann 10.10.10

Margir notuðu sunnudaginn 10.10.10 til að gera eitthvað eftirminnilegt, til dæmis til að gifta sig. Samfélagssjóður Alcoa sá þennan dag sem skemmtilegt tækifæri til að gleðja aðra og ákvað að færa 10 félagasamtökum í 10 löndum 10 þúsund dollara styrk. 

Björgunarsveitin Ársól á Reyðarfirði varð fyrir valinu á Íslandi og fékk styrkinn afhentan sl. sunnudag þegar starfsmenn Alcoa ásamt fleira fólki, unnu þar svokallað ACTION-verkefni, sem er sjálfboðaliðaverkefni sem Alcoastarfsmenn standa fyrir. Það fólst meðal annars í því  að mála húsakynni höfuðstöðva björgunarsveitarinnar að innan, klæða eldri hluta hússins að utan með álklæðningu og helluleggja stétt fyrir ofan húsið.
 
Gengu öll verkin hratt og örugglega fyrir sig enda var fjöldi fólks mættur til að aðstoða við verkið m.a. um 30 starfsmenn Alcoa Fjarðaáls. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, og Marcos Ramos, forstjóri Alcoa í Evrópu, mættu einnig til að leggja hönd á plóg. Komu þeir sannarlega færandi hendi og afhentu Ársól 10.000 Bandaríkjadali, sem samsvarar 1,2 milljónum íslenskra króna, í styrk. Veðrið lék við Austfirðinga þennan dag  og Reyðarfjörður skartaði sínu fegursta í haustlitunum. 
 
„Þessi styrkur er ákaflega mikilvægur fyrir björgunarsveitina og við erum mjög þakklát fyrir þennan góða stuðning frá Alcoa,“ sagði Hafliði Hinriksson, varaformaður Ársólar, þegar hann tók á móti styrknum fyrir hönd björgunarsveitarinnar.
 
Marcos Ramos fékk stutta kynningu á starfi björgunarsveitanna og þótti honum mikið til þess koma. Honum þótti einkar vel til fundið að veita þessu öfluga sjálfboðaliðastarfi þennan styrk frá Samfélagssjóði Alcoa. Marcos var einnig ánægður að heyra af forvarnarþætti slysavarnarfélagsins Landsbjargar og þeim góða árangri sem félagið hefur náð í forvörnum til sjós og lands.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Marcos Ramos afhendir styrkinn


Björgunarsveitin Ársól fær 3.000 Bandaríkjadali greidda með sjálfboðastarfinu eins og öll félagasamtök fá þegar tíu starfsmenn Alcoa eða fleiri vinna í a.m.k. fjóra tíma í „Action" sjálfboðavinnu fyrir þau. Þar að auki fékk sveitin óvænta ávísun að upphæð 10.000 dali, þannig að alls færði Alcoa henni um hálfa aðra milljón þennan dag - auk þess sem starfsmenn gáfu með óeigingjarnri vinnu sinni. Hér færir Marcos Ramos Hafliða Hinrikssyni stóru ávísunina.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Húsið klætt með áli


Starfsmenn Alcoa ásamt félögum úr björgunarsveitinni lögðu álklæðningu á eldri hluta Þórðarbúðar, húss sveitarinnar.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Unga kynslóðin tók þátt


Eins og ávallt þegar starfsmenn Alcoa vinna í þágu félagasamtaka, fylgdu mörg börn foreldrum sínum í sjálfboðastarfið. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft!