 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
4. september 2010
Alcoa Fjarðaál auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki
Alcoa Fjarðaál auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki fyrir síðari hluta ársins 2010. Fyrirtækið úthlutar styrkjum tvisvar á ári, að vori og hausti. Nú í vor veitti Fjarðaál rúmlega 4,6 milljónir króna í styrki til 22 aðila. Ekki eru veittir styrkir til stjórnmálasamtaka, trúfélaga eða til almenns reksturs félaga.
Fjarðaál og Samfélagssjóður Alcoa (Alcoa Foundation) hafa frá árinu 2003 styrkt fjölbreytt verkefni á Austur- og Norðurlandi um ríflega 330 milljónir króna og ætlunin með með þeim er að auðga og efla sjálfbært samfélag. Umsóknir um samfélagsstyrki Fjarðaáls þurfa að berast í síðasta lagi 10. september en styrkir verða afhentir um miðjan október. Umsóknareyðublöð má nálgast hér á heimasíðunni. Hægt er að senda umsókn sem viðhengi á netfangið styrkir@alcoa.com. Styrkveitingar vorið 2010 Hér má sjá lista yfir þá aðila sem fengu styrk í mars 2010. Foreldrafél. Leikskólans Bjarkartúns, Djúpavogi (íþróttir f. leikskólabörn) 50.000 Unglingaleikhópurinn Krísa (til að halda áfram starfsemi) 100.000 Björgunarsveitin Pólstjarnan (til að kaupa bát) 100.000
Tærgesen (Söngvakeppni Fjarðarb. ) 100.000
Skógræktarfélag Austur-Skaftfellinga (söfnun krydd- og tejurta) 100.000
Bókasafnið í Neskaupstað (smásagnasamkeppni) 150.000
Sláturhúsið/Vegahúsið Egilsstöðum (Vegareiði tokktónleikar) 200.000
Ormsteiti (bæjarhátíð) 200.000
Leikfélagið Djúpið, Verkmenntaskóla Austurlands (setja upp söngleik) 200.000
Halaleikhópurinn (leikritið Sjöundá) 200.000
Skátafélagið Héraðsbúar (til að halda skátamót) 200.000
Kayakklúbburinn Kaj (Mót Egils rauða) 200.000
Blóðgjafafélag Íslands (fá ungt fólk til að gefa blóð) 200.000
Hammond hátíðin (bæjarhátíð) 200.000
Úlfur Úlfur - nýting sköpunarkrafts ungmenna (n.k. listahátíð) 250.000
Krabbameinsfélag Austurlands (músíkþerapía) 250.000
Minjasafn Austurlands (sýning á Sómastöðum) 250.000
Ferðaþjónustan Mjóeyri („Á fætur í Fjarðabyggð") 300.000
Kári Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður (Mynd um LungA) 300.000
Kvennanefnd Verkfræðingafélags Íslands (söfnun upplýsinga í bók) 300.000
Áhugahópur um austfirska sagnfræði (bjarga myndefni af Austurl.) 300.000
Þekkingarnet Austurlands (tækjabúnaður) 500.000
Samtals úthlutað 22.mars 2010 4.150.000
|
 |
 Dæmi um styrkveitingu

 Í úthlutun vorið 2010 fékk Kajakklúbburinn Kaj styrk til að halda Kajakmót Egils rauða. Myndin, sem tekin er af vefsíðu klúbbsins, sýnir gesti mótsins árið 2008.
|
|
|