Áfram


Prentvæn útgáfa
go

22. september 2010
Securitas sér áfram um öryggisgæslu í álverinu í Reyðarfirði

Alcoa Fjarðaál og Securitas hafa undirritað samning um áframhaldandi víðtæka þjónustu öryggisfyrirtækisins við álverið í Reyðarfirði.

Samkvæmt samningnum mun Securitas sjá áfram um mannaða öryggisgæslu allan sólarhringinn, allt árið í kring, á hinu stóra athafnasvæði Fjarðaáls í Reyðarfirði. Fjarðaál setur mjög strangar öryggiskröfur og hlutverk Securitas í þessu sambandi er því mjög viðamikið. Samningurinn tekur einnig til þjónustu tæknisviðs vegna úttekta og alls viðhalds öryggiskerfa og öryggisbúnaðar álversins.


 
„Securitas hefur sinnt öryggisgæslu í álverinu frá því það var opnað árið 2007 og uppfyllt á þeim tíma ítrustu öryggiskröfur Fjarðaáls. Samstarfið á milli fyrirtækjanna hefur gengið mjög vel allan þann tíma. Þessi nýi samningur er því sannarlega byggður á traustum grunni,“ segir Óskar Borg, framkvæmdastjóri innkaupa hjá Fjarðaáli.
 
Securitas hefur starfrækt starfsstöð sína á Austurlandi frá árinu 2005 en hún er staðsett á Eskifirði. Þar starfa 20 manns.  
 
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Óskar Borg, framkvæmdastjóri innkaupa hjá Fjarðaáli, og Guðmundur Arason, forstjóri Securitas, undirrituðu samning um áframhaldandi víðtæka þjónustu Securitas við álverið á Reyðarfirði.