 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
30. september 2010
Alcoa og Pittsburgh Penguins keppa saman í „grænu” deildinni
Alcoa og bandaríska hokkíliðið Pittsburgh Penguins keppa saman að því að stuðla að aukinni endurvinnslu og umhverfisvitund meðal almennings í Bandaríkjunum. Hinn nýi og glæsilegi heimavöllur Penguins, the Consol Energy Center íþróttaleikvangurinn, hefur nú hlotið hina eftirsóttu Gold LEED umhverfisvottun og er þar af leiðandi einn af umhverfisvænustu íþróttaleikvöngum í heiminum.
Alcoa leikur stórt hlutverk í þessari viðurkenningu því fyrirtækið hefur komið fyrir rúmlega 200 endurvinnslutunnum í áhorfendastúkum leikvangsins svo auðveldara sé fyrir áhorfendur að losa sig við áldósir og koma þeim í endurvinnslu. Pittsburgh Penguins og Alcoa munu einnig kynna og auglýsa endurvinnslu og umhverfisvitund á leikvanginum sem og víðar innan borgarmarka Pittsburgh. Þá verða bifreiðar Penguins liðsins skreyttar auglýsingum sem hvetja fólk til endurvinnslu. Alcoa hefur sett sér það markmið að auka endurvinnslu í Bandaríkjunum úr 57% í 75% árið 2015. Til að auka líkurnar á að það takist hefur Alcoa dreift mörg þúsundum endurvinnslutunna um öll Bandaríkin.
|
 |


|
|
|