Áfram


Prentvæn útgáfa
go

1. september 2010
Flugstjórnarturn á LaGuardia klæddur áli frá Alcoa

Nýr og glæsilegur flugstjórnarturn á LaGuardia flugvellinum í New York hefur verið klæddur Reynobond áli frá Alcoa. LaGuardia er einn fjölfarnasti flugvöllur heims. Nýi turninn, sem er 233 feta hár, verður tekinn í notkun nú í haust.

„Reynobond álið frá Alcoa er mjög létt og hentar mjög vel í byggingu sem þessa. Það er endingargott og nánast viðhaldsfrítt sem er auðvitað mikill kostur,“ segir Stephen Wakeman, framkvæmdastjóri hönnunar hjá Jacobs of Arlington, en fyrirtækið sá um hönnunin á flugstjórnarturninum. „Turninn kemur líka mjög vel út frá fagurfræðilegu sjónarmiði og Reynobond álklæðinginginn bindur hann saman við aðrar málmklæddar byggingar flugvallarins,“ segir hann.
 
Efsti hluti turnsins, þ.e. sjálf stjórnstöðin, er klædd í bláa álklæðingu sem rennur skemmtilega saman við bláan himininn. Aðrir litir, m.a. flauelsgrátt eru notaðir á undirfleti og burðarbita turnsins.
 
„Reynobond álklæðningarnar frá Alcoa mæta ítrustu þörfum hönnuða vegna einstakrar hönnunar, breiðrar litalínu og þeirra gæða sem er á öllum plötueiningum, t.d. innsetningu lita í málminn,“ segir Sid Peterson, aðstoðarforstjóri hjá sölu- og markaðssviði byggingarvara Alcoa.
 
Litríkar Reynobond álklæðingar voru einnig notaðar til að klæða íbúðabyggingar fyrir keppendur á vetrarólympíuleikunum í Vancouver í Kanada í byrjun árs. Þá var Reynobond ál einnig notað nýverið til að endurklæða framhlið á klassískum skýjakljúfri að 100 Park Avenue á Manhattan í New York. 
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Nýi flugstjórnarturninn á LaGuardia flugvellinum í New York er klæddur léttu Reynobond áli frá Alcoa.  (Myndir: Business Wire)




Smelltu á myndina til þess að stækka hana.




Smelltu á myndina til þess að stækka hana.




Smelltu á myndina til þess að stækka hana.




Smelltu á myndina til þess að stækka hana.




Smelltu á myndina til þess að stækka hana.