


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
5. ágúst 2010
Klassísk bygging í New York klædd í Alcoa ál
Reynobond ál frá Alcoa var valið til að endurklæða framhlið klassískrar byggingar að 100 Park Avenue á Manhattan í New York.
Byggingin var ein sú fyrsta sem byggð var úr stáli og gleri um miðja síðustu öld og var ein af fyrstu nútíma skýjakljúfunum sem breyttu ásýnd Park Avenue í eftirsótt fjármálahverfi. Nú er búið að endurhanna framhluta byggingarinnar og er hann samsettur úr Reynobond áli sem gefur skýjakljúfnum afar nútímalegt útlit. Endurhönnun þessarar 36 hæða skrifstofubygginginar kostaði um 72 milljónir Bandaríkjadala. Reynobond® ál er notað víða um heim til að klæða byggingar enda þykir það ákaflega endingargott og áferðarfallegt. Þetta er í fyrsta skipti sem sem bygging í New York, sem byggð er í retro stíl, verður þess heiðurs aðnjótandi af fá sértaka silfurvottun samkvæmt LEED-staðlinum fyrir vistvænar byggingar. „Þessi tegund áls frá Alcoa er mjög létt og gerir það mögulegt að klæða framhlið byggingarinnar án þess að tefla upphaflegri undirklæðingu hennar í tvísýnu. Álið kemur líka mjög vel út útlitslega séð og gerir mikið fyrir bygginguna út frá fagurfræðilegu sjónarmiði,“ segir Michael Potkay, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins IDA International sem sá um framkvæmdirnar. Fyrirtækið hefur mikla og góða reynslu af að vinna með Reynobond® álið.
|
 |
 Fyrir breytinguna

 Byggingin þótti á sínum tíma ein sú glæsilegasta í New York en þurfti sannarlega á andlitslyftingu að halda.
 Eftir breytinguna

 Byggingin hefur tekið á sig algerlega nýja mynd eftir að klæðningin frá Reynobond var sett á hana.
|