alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

29. júlí 2010
Hagnaður hjá Alcoa

Alcoa, móðurfélag Fjarðaáls, skilaði 137 milljónum dala hagnaði, sem samsvarar um 17 milljörðum íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi 2010. Á sama tímabili í fyrra var 454 milljóna dala tap á rekstrinum.

Meginástæðan fyrir hagnaðinum er að álsala til bíla- og umbúðaframleiðenda jókst talsvert á ársfjórðungnum. Alcoa varð að venju fyrst til að skila uppgjöri af þeim félögum sem skráð eru í Dow Jones hlutabréfavísitölunni. Alls nam hagnaður félagsins eins og áður segir 137 milljónum dala, eða um 17 milljörðum króna, sem svarar til 13 senta arðs á hlut. Rekstrartekjur námu rúmum fimm milljörðum dala samanborið við rúma fjóra milljarða á öðrum fjórðungi í fyrra.
 
„Við höfum aukið hagnað og tekjur félagsins og viðhaldið sterkri eiginfjárstöðu. Framtíðarhorfur álframleiðslu Alcoa halda áfram að vera mjög góðar. Við teljum að eftirspurn eftir áli muni aukast um 12% á þessu ári en spáð var 10% aukningu í upphafi ársins,“ segir Klaus Kleinfeld, forstjóri Alcoa. 
 

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina