alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

10. maí 2010
Fimleikakona fær afreksstyrk

10 styrkjum var úthlutað úr Spretti - Afrekssjóði UÍA og Alcoa á Fjarðaálsmótinu á laugardag.

Mikil aðsókn var í sjóðinn og ekki auðvelt að gera upp á milli umsókna. Alls bárust 36 umsóknir í fjórum flokkum. Úthlutað var einum afreksstyrk, fjórum iðkendastyrkjum, þremur þjálfarastyrkjum og tveimur félagastyrkjum, samtals 670.000 krónum.
 
Sara Þöll Halldórsdóttir fimleikakona úr Hetti hlaut afreksstyrk að fjárhæð kr. 100.000 fyrir framúrskarandi árangur í fimleikum.
 
Iðkendastyrki að upphæð kr. 50.000 hlutu Andrés Kristleifsson körfuknattleiksmaður úr Hetti, Eysteinn Bjarni Ævarsson körfuknattleiksmaður úr Hetti, Tadas Jocys knattspyrnumaður í Leikni og Valdís Ellen Kristjánsdóttir fimleikakona úr Hetti. Öll þessi ungmenni hafa náð gríðargóðum árangri í sinni grein.
 
Þjálfarastyrki hlutu Guðný Margrét Bjarnadóttir skíðaþjálfari frá
Eskifirði, Jóhann Arnarson golfkennari frá Eskifirði og Miglena Kostova Apostolova blakþjálfari frá Þrótti Neskaupsstað. Félagastyrki hlutu Kajakklúbburinn KAJ Neskaupsstað og Skíðafélagið í Stafdal.
 
Afrekssjóðurinn Sprettur er samstarfsverkefni UÍA og Alcoa Fjarðaáls, en sjóðurinn er alfarið fjármagnaður af Alcoa.
 
Elín Rán Björnsdóttir  formaður UÍA segir þetta samstarf afar þýðingarmikið fyrir íþróttahreyfinguna á Austurlandi. „Þetta geri ungu afreksfólki kleift að  stunda grein sína af meira kappi, þjálfurum kost á því að bæta menntun  sína og aðildarfélögum tækifæri til að bæta starfsemi sína. Það er ómetanlegt og afar ánægjulegt að njóta stuðnings Alcoa og vinna með þeim að bættu íþróttastarfi á Austurlandi," segir Elín Rán.
 
Næsta úthlutun úr sjóðnum fer fram í október og umsóknarfrestur verður auglýstur í september 2010.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Sara Þöll (t.v.) með verðlaunin.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina