Áfram


Prentvæn útgáfa
go

23. apríl 2010
Stækkun á endurvinnslustöð í Tennessee

Nýverið vígði Alcoa nýbyggingu við áldósaendurvinnslu fyrirtækisins í Tennessee í Bandaríkjunum, en hún kostaði þrjá milljarða króna. Þessi viðbót við verksmiðjuna eykur vinnslugetu hennar um 50 prósent og skapar 100 ný störf.

„Áldósir eru hagkvæmustu drykkjarílát í heimi, vegna þess að þær er hægt að endurvinna endalaust,” sagði Klaus Kleinfeld, aðalforstjóri Alcoa í ræðu sinni við vígsluna. „Í dag fögnum við því að byggingunni er lokið og einnig þeim áfanga að hækka endurvinnsluprósentuna í Bandaríkjunum. Bara í þessu landi voru yfir 46 milljarðar af dósum settir á öskuhaugana í fyrra. Ef aðeins helmingurinn af þessum töpuðu dósum færi í endurvinnslu gætum við náð því takmarki sem við höfum sett okkur, sem er 75 prósent endurvinnsla. Orkan sem sparaðist við þá endurvinnslu samsvarar framleiðslu tveggja kolaorkuvera, og það munar um útblásturinn frá þeim.”
 
Meðal tækjanna í nýbyggingunni er stór dósapressa og lakkbræðsluofn ásamt nýjum mengunarvörnum. Þessar umbætur fela í sér orkusparnað og minni mengun, og einnig er hugsanlegt að nota tækin í endurvinnslu á öðrum hlutum úr áli í framtíðinni.
 
Þegar áldós er endurunnin sparar það 95% af orkunni sem þarf til að gera dós úr glænýju áli. Notuð áldós getur farið í gegnum endurvinnslu og verið komin aftur í búðarhillu innan tveggja mánaða en það verður ekki sagt  um neina aðra tegund af drykkjarumbúðum.
 
Mikil þörf er á því að auka endurvinnslu í Bandaríkjunum, þannig að nýja endurvinnslustöðin er mikilvægt framtak í þá átt. „Í dag eru 54 prósent af öllum áldósum sem framleidd eru í Bandaríkjunum endurunnar,” sagði Klaus, „en ef allir settu eina dós í viðbót í endurvinnslu á viku, þá gætum við náð 75 prósenta takmarkinu.”
 


Klaus Kleinfeld, aðalforstjóri Alcoa, ávarpar gesti við víglsuathöfnina.