Áfram


Prentvæn útgáfa
go

27. apríl 2010
Klaus Kleinfeld nýr stjórnarformaður Alcoa

Klaus Kleinfeld, forstjóri Alcoa, var einnig kjörinn stjórnarformaður fyrirtækisins á árlegum hluthafafundi þess á dögunum.

Kleinfeld, sem er þýskur, tekur við starfi stjórnarformanns af Brasilíumanninum Alain Belda sem ákvað að láta af störfum eftir 40 ára farsælan feril hjá Alcoa. Hann var um árabil bæði forstjóri og stjórnarformaður fyrirtækisins. Belda hafði m.a. frumkvæði að því að álverið í Reyðarfirði var byggt. Kleinfeld hefur setið í stjórn Alcoa síðan 2003 og var ráðinn forstjóri fyrirtækisins í maí 2008. Kleinfeld var áður forstjóri Siemens AG
 
„Mér finnst mikils virði að geta yfirgefið fyrirtækið vitandi að það er í mjög góðum höndum. Ég ber mikið traust til Kleinfeld enda hefur hann afar mikla reynslu af stjórnun og góða leiðtogahæfileika,” segir Alain Belda um eftirmann sinn.
 
„Belda hefur unnið frábært starf fyrir Alcoa. Hann var lykilmaður í að alþjóðavæða fyrirtækið sem var ein mikilvægasta breytingin í sögu þess,” segir Klaus Kleinfeld.
 
Fleiri breytingar hafa einnig orðið á stjórn Alcoa. Frank Thomas og Henry Schacht hafa ákveðið að hætta sem stjórnarmenn þótt þeir starfi báðir áfram sem ráðgjafar fyrir stjórnina. Judith Gueron, sem verið hefur stjórnarmaður í Alcoa síðan 1988, tekur við sem varaformaður stjórnar en Frank Thomas hafði áður gengt þeirri stöðu. Þá kemur Arthur D. Collins, fyrrum forstjóri Medtronic, inn sem nýr stjórnarmaður hjá Alcoa. Hann á einnig sæti í stjórn Boeing-verksmiðjanna.
 


Klaus Kleinfeld


Arthur D. Collins, Jr.