Áfram


Prentvæn útgáfa
go

13. apríl 2010
Hlaut Gulleggið í ár

Sprotafyrirtækið Remake Electric hlaut Gulleggið 2010 með sigri í frumkvöðlakeppni Innovit. Alls voru 300 hugmyndir skráðar til leiks. Alcoa Fjarðaál var meðal þeirra fyrirtækja sem styrktu keppnina í ár. 

Remake Electric hefur þróað nýja og byltingarkennda tegund rafskynjara sem stefnt er að að setja á heimsmarkað á næstu misserum. Rafskynjarinn er í raun ný kynslóð af rafmagnsöryggjum og hefur rauntímavísun í stöðu rafmagnsálags ásamt hljóðviðvörun vegna yfirálags, sem eykur líkur á að unnt sé að fyrirbyggja eldsvoða af völdum rafmagns. Upplýsingar frá rafskynjaranum gera notendum einnig kleift að skilja, stjórna og hagræða rafmagnsnotkun sinni til að auka öryggi í rekstri, bæta framleiðni rafmagns og spara með því að draga úr rafmagnsnotkun.
 
Fyrir sigurinn hlaut Remake Electric eina milljón króna í peningaverðlaun, veglega ráðgjöf frá Innovit og verðlaunagripinn Gulleggið, sem Ásdís Jörundsdóttir, nemi í Listaháskóla Íslands, hannaði.
 
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti sigurlaunin við fjölmenna athöfn á Háskólatorgi. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, sat í dómnefnd frumkvöðlakeppninnar.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Verðlaunahafarnir


Aðstandendur Remake Electric voru að vonum ánægðir með sigurinn.


Gulleggið


Innovit stóð nú fyrir keppninni um Gulleggið í þriðja sinn. Allir hafa þátttökurétt í keppninni, en hún er haldin að fyrirmynd samskonar keppni við MIT háskóla í Bandaríkjunum og sambærilegra keppna á Norðurlöndunum sem kallast Venture Cup.
fara á síðu Innovit