alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

1. mars 2010
Mikill meirihluti jákvæður gagnvart Alcoa Fjarðáli

Í niðurstöðum skoðanakönnunar sem Capacent Gallup gerði fyrir Alcoa á Mið-Austurlandi í október og nóvember síðastliðnum kemur m.a. fram að 78,3% íbúa svæðisins eru jákvæðir gagnvart Alcoa Fjarðaáli.

12,5% íbúa Mið-Austurlands eru hlutlausir gagnvart fyrirtækinu en 9,1% neikvæðir. 89,8% íbúa telja að álver Alcoa Fjarðaáls hafi haft jákvæð áhrif á búsetuskilyrði á Austurlandi. Einnig kemur fram að 95,2% íbúa er ánægður með að búa á Mið-Austurlandi. Þar af eru 78,1% mjög ánægðir. 89,0% íbúa telja að á heildina litið væri staða Austurlands verri í dag ef álverið hefði ekki verið reist.
 
Alcoa hefur frá árinu 2006 birt niðurstöður skoðanakannana á viðhorfi íbúa Austurlands til álversins á Reyðarfirði og íslensks áliðnaðar.
 
Könnunin náði til 1390 manns sem búsettir eru á Austurlandi. Svarhlutfall var 59,1%. Ítarlegri niðurstöður úr könnuninni og nánari upplýsingar um framkvæmd hennar er að finna í skýrslu Capacent Gallup sem eru aðgengileg hér á síðunni.
 

Viltu skoða niðurstöðurnar?


Hægt er að skoða allar tölur varðandi niðurstöður könnunarinnar í skýrslu Capacent Gallup.
skoða skýrsluna (0,2 Mb)

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina