alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

24. febrúar 2010
Bernt Reitan lætur af störfum – John Thuestad tekur við

Fyrr í vikunni tilkynnti Klaus Kleinfeld að stjórn Alcoa hafi ráðið Norðmanninn John Thuestad sem aðstoðarforstjóra Alcoa og forstjóra framleiðslusviðs, en hann tekur við starfinu þann 1. mars nk. John tekur við þessari stöðu af öðrum góðum Norðmanni, Bernt Reitan sem lætur nú af störfum eftir 10 ár hjá Alcoa og næstum 40 ár í áliðnaðinum.

John Thuestad mun bera ábyrgð á stjórnun og rekstri súrálsverksmiðja og álvera Alcoa um allan heim. Undir hann heyra einnig nýjar framkvæmdir, þ.á.m. hin nýja og glæsilega álverssamstæða sem Alcoa hyggst byggja í samvinnu við stjórnvöld í Ma’aden, Sádí Arabíu. Hann hefur einnig yfirumsjón með námuvinnslu Alcoa, málmkaupum og –sölu, ásamt flutningi. John hóf störf hjá Alcoa árið 2008 sem yfirmaður álframleiðslusviðs, en hann var áður forstjóri Elkem ASA í Noregi.
 
Starfsmenn hjá Fjarðaáli sjá eftir Íslandsvininum Bernt Reitan en segja má að álverið í Reyðarfirði sé hans óskabarn. Hann hóf störf hjá Alcoa árið 2000 og hefur gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum á þessum áratug. Hann hefur lagt grunn að glæstri framtíð fyrirtækisins á heimsvísu, m.a. með Fjarðaáli, sem er fyrsta álverið sem Alcoa hafði byggt í 20 ár, ásamt báxítnámu og höfn í Brasilíu. Einnig hefur hann haft yfirumsjón með nútímavæðingu súrálsverksmiðja og álvea Alcoa um allan heim. Hann stýrði samningagerð við Orkla nýlega, um að skiptast á hlutafé í fyrirtækjum þannig að Alcoa eignaðist helmingshlut þess í álveri í Noregi – og á nú allt álverið.
 
Bernt hefur þjónað áliðnaðinum í 40 ár og lagt fram mikilvægan skerf til uppbyggingar þessa geira. Hann verður ráðgjafi stjórnarformanns Alcoa frá 1. mars til 1. ágúst, þegar hann lætur formlega af störfum.
 

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina