alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

23. febrúar 2010
Leikskólabörn fræðast um öryggismál

Leikskólabörn frá leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði gáfu Alcoa Fjarðaáli listaverk og fræddust um öryggismál í heimsókn sinni í fyrirtækið nýverið. Heimsóknin var í tilefni af degi leikskólans  6. febrúar, sem haldinn er í tilefni þess að þann dag árið 1950 stofnuðu leikskólakennarar fyrstu samtök sín.

Börnin voru úr efstu deild leikskólans og komu færandi hendi með myndir sem þau hengdu upp í starfsmannahúsi álversins. Þau fengu kynningu á öryggismálum hjá Alcoa, og fengu aðgangspassa, hjálma og gleraugu eins og aðrir gestir álversins.
 
Eftir að uppsetningu listasýningarinnar lauk var hópmyndataka og svo lá leiðin í mötuneyti fyrirtækisins á þriðju hæð þar sem boðið var upp á mjólk og kleinur og djús.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Áhugasöm um öryggismál


Krökkunum fannst mjög áhugavert að máta hjálmana og vildu helst fá að halda þeim.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Listaverk á vegginn


Þessar tvær ungu stúlkur eru stoltar af verkunum sínum.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Fríður hópur


Þau fylltu svo sannarlega ganginn í álverinu af lífi og lit, börnin í leikskólanum Lyngholti

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina