alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

19. febrúar 2010
Litríkt álið frá Alcoa er áberandi í ólympíuþorpinu í Vancouver

Nýju íbúðabyggingarnar, þar sem keppendur á leikunum sofa, borða og geta horft á útsendingar sjónvarpsstöðvanna frá leikunum eru klæddar í áberandi appelsínugulum og skærrauðum litum og fara því ekkii fram hjá neinum sem leið eiga um Ólympíuþorpið í Vancouver.

Neil Deppiesse, framkvæmdastjóri Compass Cladding í Vancouver, er með yfir 30 ára reynslu í uppsetningu á álklæðningakerfum. Hann var arkitektum og hönnuðum íbúðabygginganna í Ólympíuþorpinu til ráðgafar við val á álklæðningum, þar sem gæði og litasamsetningar réðu miklu um valið.
 
„Reynobond álklæðningarnar frá Alcoa mættu ítrustu þörfum hönnuða bygginganna vegna breiðrar litalínu og þeirra gæða sem er á öllum frágangi á plötueiningunum, t.d. innsetningu lita í málminn. Klæðningarnar frá Reynobond henta vel umhverfi Vancouver, þar sem strandlengjan er meðal megin borgareinkennanna,“ segir Neil Deppiesse.
 
Nánari upplýsingar



Litríkt Ólympíuþorp


Íþróttamenn sem keppa á Ólympíuleikunum í Vancouver 2010 sofa, borða og horfa á íþróttaleiki í byggingum sem eru klæddar með orkusparandi, endurvinnanlegum og litríkum Reynobond® álplötum.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina