alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

5. febrúar 2010
Vill halda áfram starfsemi á Ítalíu

Klaus Kleinfeld, forstjóri Alcoa Inc, segir í bréfi til Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að vilji Alcoa standi til að halda áfram starfsemi á Ítalíu, verði það gert mögulegt.

Bréf Kleinfeld er svar við bréfi sem Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, skrifaði honum í síðustu viku vegna áforma Alcoa um að loka tímabundið tveimur álverum á Ítalu. Forsaga málsins er sú að Evrópusambandið ákvað í nóvember, eftir úttekt sem tók þrjú ár, að hafna raforkusamningi á milli ítölsku ríkisstjórnarinnar og Alcoa. Ennfremur úrskurðaði sambandið að Alcoa skyldi greiða yfir 300 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 38 milljarða króna, sem er tíu sinnum hærri upphæð en má réttlæta með samanburði við samkeppnishæft rafmagnsverð á þessum tíma. Alcoa hefur áfrýjað úrskurðinum.
 
Í framhaldinu kynnti Alcoa í nóvember áætlanir um tímabundna lokun álveranna í Portovesme og Fusina á Ítalíu.
 
Kleinfeld þakkaði Berlusconi í bréfi sínu fyrir boð um að miðla málum milli Alcoa og framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. „Alcoa vill halda starfsemi sinni á Ítalíu áfram,” sagði hann. Fram kom að tap af rekstri álveranna á Ítalíu nemur yfir 8 milljónum dollara, eða um milljarði króna á mánuði, vegna hás orkukostnaðar.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina