alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

25. febrúar 2010
Alcoa á Íslandi heyrir nú undir Evrópu

Eftir breytingar á skipulagi yfirstjórnar álframleiðslusviðs Alcoa, heyrir Alcoa á Íslandi nú undir Evrópu í stað Kanada áður.

Breytingar hafa verið gerðar á skipulagi yfirstjórnar álframleiðslusviðs (GPP) Alcoa. Eftir breytingarnar heyrir Alcoa á Íslandi undir Evrópu í stað Kanada áður.
 
Breytingin liggur á vissan hátt beint við, þar sem Ísland tilheyrir evrópska efnahagssvæðinu, rafskautin sem notuð eru í Alcoa Fjarðaáli koma frá Noregi, allar afurðir þess fara á Evrópumarkað og margvísleg stoðþjónusta er sótt til Alcoa í Evrópu.
 
Jean-Pierre Gilardeau, sem verið hefur yfirmaður álframleiðslusviðs Alcoa í Norður-Ameríku og á Íslandi og gegndi veigamiklu hlutverki í uppbyggingu og gangsetningu Fjarðaáls, hefur tekið við nýju starfi forstjóra tækni og framleiðslu fyrir öll álverin innan samsteypunnar.
 
Marcos R. Ramos er forstjóri álframleiðslusviðs Alcoa í Evrópu. Hann er ábyrgur fyrir rekstri álvera Alcoa í Fusina og Portovesme á Ítalíu, í Avilés, La Coruña og San Ciprián á Spáni, Lista og Mosjoen í Noregi, svo og súrálsverksmiðjunni í San Ciprian á Spáni. Þann 3. febrúar síðastliðinn bættist svo Fjarðaál í þann hóp fyrirtækja sem undir hann heyra.
 
Marcos og Jean-Pierre eru væntanlegir í heimsókn til Fjarðaáls síðar í mánuðinum.
 

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina