


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
8. febrúar 2010
Alcoa hátt á siðferðilista
Alcoa greindi frá því í vikunni að fyrirtækið væri efst á lista fyrirtækja í auðlindavinnslu á árlegum lista Covalence sem metur og mælir siðferði og orðstír alþjóðlegra fyrirtækja.
Alcoa hefur verið efst á þessum lista frá því hann var fyrst gefinn út árið 2005. Sé litið til allra fyrirtækja í öllum flokkum var Alcoa nr. 11 þetta árið, af 581 fyrirtæki. Covalence eru frjáls félagasamtök með höfuðstöðvar í Genf. Gerð listans byggir á mati Covalance á frammistöðu fyrirtækja á fjölmörgum sviðum, svo sem í starfsmannamálum, meðferð úrgangs og mannréttindamálum. Nánari upplýsingar: http://www.covalence.ch
|
 |
|