


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
22. febrúar 2010
Alcoa hvetur til aukinnar endurvinnslu
Á þessu ári hyggst Alcoa gefa 50.000 endurvinnslutunnur til samtaka og samfélaga í Bandaríkjunum til að stuðla að aukinni endurvinnslu. Gjöfin er liður í sameiginlegu átaki Alcoa og alþjóðlegu álsamtakanna Aluminum Association.
Átakið miðar að því að auka hlutfall áldósa sem fara til endurvinnslu í Bandaríkjunum í 75% fyrir árið 2015. Nú fara um 54% áldósa í Bandaríkjunum til endurvinnslu. Samkvæmt upplýsingum frá Endurvinnslunni má áætla að þetta hlutfall sé hátt í 90% á Íslandi. Ál leggur til 40% þeirra verðmæta sem endurvinnsla byggir á Hægt er að endurvinna ál aftur og aftur, endalaust, án þess að eiginleikar þess breytist. Gosdós úr áli sem fer í endurvinnslu, er líkleg til að verða að nýrri dós í hillum verslana innan tveggja mánaða. Til endurvinnslu áls þarf 95% minni orku en til hefðbundinnar framleiðslu. Ál er eitt verðmætasta hráefnið í endurvinnslutunnum. Í Bandaríkjunum er ál til dæmis innan við 2% af þyngd sorps sem fer til endurvinnslu en leggur til 40% þeirra verðmæta sem endurvinnslan byggir á.
|
 |
 Fimmtíu þúsund endurvinnslutunnur

 Alcoa gefur 50.000 endurvinnslutunnur víða um Bandaríkin til þess að hvetja almenning til meiri endurvinnslu. Ef hver Bandaríkjamaður setur eina dós í viðbót í endurvinnslu í hverri viku, tekst Alcoa að ná því markmiði að auka endurvinnsluhlutfallið úr 54% eins og það er í dag upp í 75% árið 2015.
|