


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
8. janúar 2010
Rúmlega 11 þúsund hafa heimsótt álverið
Fjarðaál, álver Alcoa í Reyðarfirði, er vinsæll ferðamannastaður. Á síðastliðnum fimm árum hafa um rúmlega 11 þúsund manns heimsótt álverið.
Mikill áhugi var á álverinu þegar á byggingatíma þess, það mikill að Alcoa setti upp upplýsingamiðstöð ofan framkvæmdasvæðisins og bauð upp á rútuferðir um svæðið með leiðsögn. Um 5000 manns heimsóttu upplýsingamiðstöðina, fræddust um álverið og fylgdust með framkvæmdum árin 2005 og 2006. Eftir að álverið hóf starfsemi í apríl 2007 hefur verið boðið upp á kynningu á starfsemi Fjarðaáls og skoðunarferðir um álverssvæðið en það ár fóru um 2600 manns í slíkar skoðunarferðir. Heldur dró úr heimsóknum eftir bankahrunið haustið 2008 en yfir 2100 manns heimsóttu Fjarðaál á síðasta ári. Yfir sumartímann er gestum og gangandi boðið upp á fræðsluferðir um álverssvæðið á hverjum laugardegi. Að meðaltali hafa yfir 2200 gestir heimsótt Fjarðaál árlega síðustu fimm árin. Auk almennra ferðamanna, innlendra sem erlendra, hafa margvíslegir hópar og félagasamtök heimsótt Fjarðaál. Nefna má ráðherra, alþingismenn og sveitarstjórnarfólk. Innlendir og erlendir blaðamenn hafa komið í heimsókn og verkalýðsleiðtogar en í síðasta af fjölmörgum hópum sem heimsóttu Fjarðaál í desember 2009 voru sviðsstjórar Starfsgreinasambands Íslands sem komu í heimsókn milli skipulagsfunda sem haldnir voru á Austurlandi. Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, sagði að auk kynnisferðar um Fjarðaál hafi verið fundað með stjórnendum álversins „en það höfðum við ekki gert síðan á byggingatíma þess. Þá voru okkur kynnt mörg og metnaðarfull markmið Alcoa og það kom okkur ánægjulega á óvart að sjá að þau höfðu flest náð fram að ganga nema það markmið að helmingur starfsmanna álversins væru konur. Engu að síður hefur merkilega góður árangur nást hvað kynjahlutfallið varðar og hlutfall kvenna hjá Fjarðaáli er mun hærra en hjá öðrum álverum í heiminum. Það var einnig ánægjulegt að sjá þau jákvæðu áhrif sem uppbygging álversins hefur haft á samfélagið eystra með fjölda nýrra starfa sem eru komin til að vera ,” segir Skúli.
|
 |


|