alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

13. janúar 2010
Eins og blikandi stjörnur

Allir nemendur, rúmlega 200 talsins, í  fyrsta og öðrum bekk  grunnskólanna í Fjarðabyggð,  á Fljótsdalshéraði, Seyðisfirði og í Breiðdalsvík fengu nýverið endurskinsvesti að gjöf frá Fjarðaáli, VÍS og lögreglunni á Austurlandi. Krökkunum þóttu vestin flott og þau lofuðu því að nota þau á hverjum degi

Allir nemendur, rúmlega 200 talsins, í  fyrsta og öðrum bekk  grunnskólanna í Fjarðabyggð,  á Fljótsdalshéraði, Seyðisfirði og í Breiðdalsvík fengu nýverið endurskinsvesti  að gjöf frá Fjarðaáli, VÍS og lögreglunni á Austurlandi. Krökkunum þóttu vestin flott og þau lofuðu því að nota þau á hverjum degi.
 
Það er stefna Alcoa Fjarðaáls að styðja árlega samfélagsverkefni á sviði öryggis og heilsu. „Okkur þykir mjög ánægjulegt að geta aukið öryggi barnanna  með því að gera þau sýnilegri í skammdegismyrkrinu,” sagði Guðný Björg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri öryggis og heilsu hjá Fjarðaáli, þegar hún afhenti vestin í Grunnskólanum á Reyðarfirði.
 
Ragnheiður Davíðsdóttir og Gísli Níls Einarsson, forvarnafulltrúar hjá VÍS eru ánægð með samstarfið við Fjarðaál í þessu verkefni, enda eitt af mikilvægustu markmiðum VÍS að vinna að forvörnum. „Endurskinsvesti eins og krakkarnir fengu varpa frá sér mun meiri birtu en hefðbundin endurskinsmerki og eru því mjög mikilvæg forvörn,” segja Ragnheiður og Gísli.
 
Alcoa Fjarðaál hvetur þá fullorðnu til að sýna aðgát í umferðinni og draga verulega úr hraða þar sem búast má við börnum að leik.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Öruggari í umferðinni


Guðný Björg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri öryggis- og heilsumála Alcoa Fjarðaáls afhenti vestin ásamt Guðrúnu Stefánsdóttur frá VÍS í vikunni. Hér eru þær ásamt nemendum fyrsta bekkjar grunnskóla Reyðarfjarðar.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina