


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
18. janúar 2010
Framleiðsla umfram áætlanir
Framleiðslan í álveri Fjarðaáls á Reyðarfirði var meiri í fyrra en áætlanir gerðu ráð fyrir og þrátt fyrir erfitt ár var niðurstaðan í rekstrinum viðunandi. Þetta kemur fram í pistli Tómasar Más Sigurðssonar forstjóra í Álpappírnum, starfsmannablaði fyrirtækisins.
Pistill Tómasar: Í UPPHAFI ÁRS Árið 2009 var viðburðarríkt hjá okkur. Það hófst með látum, ekki bara á Austurvelli, heldur líka á mörkuðum og verð á áli var í frjálsu falli fyrstu mánuði ársins. En við brugðumst við af kappi og gerðum allt sem við gátum til að spyrna við. Miklu sparnaðarátaki var ýtt úr vör, hagræðing varð í hráefniskaupum og fjöldi annara tækifæra var nýttur. Það er ykkar hugviti og krafti að þakka að við náðum að bæta hina ýmsu þætti rekstrarins stórkostlega og þess vegna getum við sagt í dag að við séum að skila af okkur afar ásættanlegri niðurstöðu fyrir árið 2009. Framleiðslan var vel umfram væntingar og við fluttum út 349.433 tonn, nákvæmlega. Flest ef ekki öll framleiðslumarkmið náðust og í dag er ekkert álver í heiminum sem daglega framleiðir jafn mörg tonn í hverju keri og Fjarðaál. Og þegar árangurinn er skoðaður í hverju ferli fyrir sig kemur fljótlega í ljós að framfarir eru rauði þráðurinn hvert sem litið er. Við getum því verið afar stolt af árangri okkar á síðasta ári. Þó að við höfum bætt okkur umtalsvert í öryggismálum er staðan samt sú að við eigum enn talsvert í land með að vera sá slysalausi vinnustaður sem ég veit að við getum orðið. Tvö alvarleg slys við víravél bregða skugga á annars góðan árangur og þær framfarir í öryggismálum sem náðust á árinu. Það er einfaldlega stærsta verkefni okkar að útrýma öllum slysum og það hefst ekki nema við göngum alla leið í að breyta hugarfari okkar hvert og eitt. Ekkert verk er þess eðlis að ásættanlegt sé að vinna það án þess að til sé vinnulýsing eða farið sé í gegnum þá vinnu sem þarf til að fylla út vel ígrundað B4 eyðublað áður en verkið er hafið. Framleiðslan er ekki í fyrirrúmi hjá okkur, heldur við sjálf. Á árinu 2010 verður haldið áfram á þeirri braut sem við höfum varðað í átt að stöðugleika og framförum. Megináherslan verður á að ná að framleiða þær vörutegundir sem stefnt var að í upphafi á víravél og HDC á öruggan hátt og samkvæmt kröfum viðskiptavinanna. Þá verður þjálfun aukin til muna og mikil áhersla verður lögð á að gera vinnu við lausnir allra framleiðslutengdra vandamála sýnilega. Þá þurfum við einnig að einbeita okkur að því að styrkja samskipti innan vinnustaðarins og tryggja stöðugleika í mönnun.Við munum líka horfa stíft til þess verklags sem best gerist innan Alcoa og reyna að innleiða nauðsynlegar breytingar eins hratt og hægt er. Í skautverksmiðju okkar í Mosjoen í Noregi eru mikil vandræði með ofnana sem baka skautin. Þar hefur verið samþykkt að fara í flókið nýfjárfestingaverkefni sem vonandi skilar sér í að skautgæðin komist í ásættanlegt horf með vorinu. Þangað til má hins vegar reikna með áframhaldandi vandamálum vegna skautanna en til að mæta þeim hefur verið ákveðið að fjölga starfsfólki í kerskála tímabundið. Með haustinu munum við einnig hefja framkvæmdir við nýja kersmiðju sem er í raun ný verksmiðja hjá okkur. Það er á áætlun að taka 2 ker út úr rekstri og fóðra þau upp á nýtt inn í kerskálanum á síðustu mánuðum þessa árs. Þá verður lögð mikil áhersla á umgengni um verksmiðjuna og tækin okkar bæði í tengslum við frammistöðuávinning en ekki síst í samhengi við aukna þátttöku okkar allra í daglegri umhirðu framleiðslutækja. Hvað Bakka varðar þá trúi ég enn að þar sé frábært tækifæri fyrir okkur til að auka starfsemi okkar á Íslandi. Við höfum unnið að því verkefni af fullum hug allt frá árinu 2006. Í október sl. tilkynnti iðnaðarráðherra okkur hins vegar að ríkisstjórnin myndi ekki framlengja viljayfirlýsingu við okkur um áframhaldandi vinnu við verkið. Það er því ekki vilji stjórnvalda að Alcoa byggi álver á Bakka. Þrátt fyrir það munum við klára á þessu ári vinnu við mat á umhverfis-áhrifum og sem fyrr vinna í nánu sambandi við sveitar-stjórnirnar þannig að hægt sé að hefja rannsóknarboranir á næsta sumri. Vonandi leiðir það til þess að þegar fram líða stundir verði hægt að byggja þar jafn glæsilegt álver og Fjarðaál er. Árið sem er rétt liðið var okkur til mikils sóma og ég trúi því að á næsta ári munum við enn frekar setja mark okkar á jákvæðan hátt á árangur Alcoa og lífið á Austurlandi. Við getum verið stolt af því sem við höfum áorkað saman og sýnt að við getum mætt þeim áskorunum sem upp koma vopnuð faglegum vinnubrögðum, þekkingu og festu og komið sterkari frá hverri glímu. Að lokum, eins og alltaf, förum vel með okkur á nýju ári. Hugsum vel hvert um annað og snúum heim í jafn góðu ef ekki betra ásigkomulagi en við komum til leiks í byrjun vaktar eða vinnudags.
|
 |


|